Þekktu þitt magamál
Langar þig að verða sáttari við matarvenjur þínar?
Langar þig að læra þægilega og eðlilega leið til að taka eftir og vinna með merkjum líkamans um svengdar- og seddutilfinningu?
Stutt námskeið (4 skipti, alls 6 klst.) þar sem farið er í grunnatriðin í bókinni Þekktu þitt magamál. Bókin byggir á nálguninni þjálfun svengdarvitundar sem hefur gefið góða raun. Hentar öllum sem vilja taka upp heilbrigðari matarvenjur og verða sáttari við eigin matarneyslu.
- Námskeiðið byggir á fræðslufyrirlestrum og heimaverkefnum.
- Leiðbeinendur eru Valgerður Margrét Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur, Helma Rut Einarsdóttir sálfræðingur og Ragnhildur Guðmundsdóttir MSc í sálfræði. Leiðbeinendur hafa lokið sérnámi í hugrænni atferlismeðferð.
- Skráning í móttöku Heilsuborgar í síma 560 1010 eða á . Einnig hjá leiðbeinendum á
- Nánari upplýsingar í símum 691-3949 (Valgerður) og 846-7916 (Ragnhildur)
- Kennt er fjóra þriðjudaga í röð kl. 19:00-20:30.
Skráning er hafin á næsta námskeið sem verður haldið í febrúar/mars 2013 eða eftir eftirspurn. Verð kr. 18.000 (bók innifalin).
Sjá einnig námskeiðið: HAM - Hugsun og líðan í átt að líkamssátt
