Orkulausnir
Hentar einstaklingum sem glíma við orkuleysi, þrekleysi, verki, svefnvanda, andlega vanlíðan eða áþekk einkenni. Einnig þeim sem glíma við vefjagigt eða þeim sem vilja komast af stað í þjálfun eftir veikindi af ýmsum toga.
Unnið er með hugsun, hegðun, hreyfingu og líðan. Námskeiðið miðar að því að innleiða jafnvægi í daglegt líf, vinna með streituþætti og lágmarka þá. Góð leið fyrir þá sem vilja vinna með sitt innra og ytra jafnvægi ásamt því að koma á reglulegri hreyfingu.
Innifalið á námskeiðinu er:
- Þjálfun undir leiðsögn sjúkraþjálfara tvisvar í viku - 6 vikur (námskeiðið í maí er 6 vikur en annars er námskeiðið venjulega 8 vikur)
- Þri. og fim. kl. 10:00 eða 15:00
- Framhaldshópur þri. og fim. kl. 14:00
- Leidd slökun í 20 mín í lok þjálfunartíma einu sinni í viku
- Kennsla í réttri líkamsstöðu og líkamsbeitingu, þjálfun miðuð við getu hvers einstaklings
- Einstaklingsviðtal við hjúkrunarfræðing. Þar er meðal annars er hugað að streitutengdum þáttum og andlegri líðan með áherslu á að ná árangri með innri streituþætti, hugað að mataræði, hindrunum til að stunda hreyfingu og almennu heilsufari.
![]()
Hefst 13. maí
Verð kr. 25.900 fyrir 6 vikur.
Framhaldsnámskeið kr. 20.900,-
Sjá viðtal við Lindu Gunnarsdóttur um Orkulausnir
