Heilsumat
Heilsumat sem þessi er hægt að velja ein og sér eða með annari þjónustu Heilsuborgar. Heilsumatið er ávalt hluti af heilsulausnum en til viðbótar bætist þar þjálfun, fræðsla og stuðningur, mismikið eftir umfangi hverrar heilsulausnar.
Mæling í líkamsgreiningartæki
Mælingar á þyngd og samsetningu líkamans eru gerðar með viðnámsmæli af gerðinni TANITA body compositional analyzer BC-418MA. Til þess að mælingin gefi sem besta mynd af líkamsástandi þínu er æskilegt að þú hafir ekki verið í áreynslu, neytt áfengis eða stórrar máltíðar í 12 klst fyrir mælingu og hafir ekki borðað eða drukkið í 3 klst fyrir mælingu. Æskilegt er að tæma þvagblöðru fyrir mælingu. Ekki er mælt með að gera mælingu sem þessa meðan á tíðabæðingum stendur. Ef ætlunin er að gera samanburð á mælingum á mismunandi tímabilum er æskilegt að mælingarnar séu gerðar við svipaðar aðstæður og á sama tíma dags.
Heilsumat 1
Heilsufarsmat - Mæling í líkamsgreiningartæki
Heilsumat 2
Heilsufarsmat - Mæling í líkamsgreiningartæki og ráðgjöf sjúkraþjálfara
Heilsumat 3
Heilsufarsmat - Mæling í líkamsgreiningartæki og ráðgjöf sjúkraþjálfara og læknis
Sjá nánar um Heilsumat 1, 2 og 3 í valmyndinni hér til hliðar
