Heilsurækt
Hreyfing er mikilvæg til að fyrirbyggja heilsubrest. Hún er líka mikilvægur hlekkur í meðferð flestra sjúkdóma.
Hreyfing við hæfi hentar öllum.
Þjálfarar okkar aðstoða þig við að finna hreyfingu sem henta þér.
Mundu: Margt smátt gerir eitt stórt - öll hreyfing skiptir máli!
Í tækjasal heilsuræktar eru vönduð tæki af gerðinni Tecnogym sem gefa möguleika á mikilli breidd í þjálfun. Þessum tækjum tilheyrir meðal annars lyklakerfi sem býður þann möguleika að þjálfunaráætlun þín verði sett inn á lykil sem leiðbeinir um æfingar og skipulag þeirra. Leitast er við að finna hreyfingu við hæfi, hópþjálfun eða einstaklingameðferð með eða án lyklakerfis eftir því sem hentar þér best.
Lyklaþjálfun: Tecnogym tækin innihalda sérhannað tölvutengt þjálfunarkerfi. Það veitir aukið aðhald og eftirfylgni. Það er einfalt í notkun og gerir þjálfunina markvissa. Þjálfari hannar æfingaáætlun sem hentar þér og setur inn á lykilinn. Áætlunin tryggir að þú gerir æfingar sem hæfa þínu líkamsástandi. Lykillinn skráir niður alla þá hreyfingu sem þú gerir inn á stöðinni og hægt er að skrá alla þá viðbótarhreyfingu inn á lykilinn sem þú gerir umfram æfingaáætlunina svo sem gönguferðir eða sund. Þannig er auðvelt fyrir þig að ná þínum markmiðum og auðvelt er fyrir þjálfara að veita aðhald og eftirfylgni.
Wellness lykill: Hvað geri ég ?
- Þú pantar tíma hjá þjálfara
- Tímapantanir í afgreiðslu eða í síma 560 1010
- Þjálfari hannar einstaklingsmiðaða þjálfunaráætlun inn á TGS lykil
- Þjálfari fer yfir æfingar og kennir rétta líkamsbeitingu
- Lykillinn les og skráir allar æfingar sem eru gerðar eru
Opnunartími: Virka daga frá kl 06-20, laugardaga frá kl 08-15, lokað á sunnudögum.
Ný heilsurækt, nýjar áherslur. Vönduð tæki. Þjálfarar okkar aðstoða þig við að finna hreyfingu við hæfi.
