Einkaþjálfun
Einkaþjálfun er einstaklingsmiðuð þjálfun undir leiðsögn þjálfara. Þjálfari gerir ástandsmælingar í upphafi og setur upp þjálfunaráætlun í samræmi við líkamsástand þitt og markmið.
Þjálfarinn fylgir þér og leiðbeinir í gegnum allar æfingar ásamt því að ráðleggja með mataræði o.fl. Þjálfarinn sé um að æfingarnar séu rétt samsettar, rétt gerðar og á réttu álagi. Hvort heldur sem þú ert að glíma við heilsukvilla, vilt ná tökum á þyngdinni eða einfaldlega vilt fá aðhald, hvatningu og aðstoð við að setja þér markmið þá er einkaþjálfun góð leið.
Einkaþjálfarar Heilsuborgar eru í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara og aðra fagaðila sem starfa innan Heilsuborgar.
Hópaþjálfun
Hópaþjálfun 2-4 saman í hóp en byggir að öðru leyti á því sama og einkaþjálfun.
Sjá einnig thjalfun.net
