Fræðsla og fagaðilar
Í Heilsuborg starfalæknar með margskonar sérfræðimenntun, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar, næringarfræðingar, sálfræðingar og félagsráðgjafar.
Lögð er áhersla á forvarnir, meðferð og endurhæfingu sjúkdóma sem lífstíll hefur mikil áhrif á. Í fyrstu verður mest áhersla lögð á offitu en í framhaldinu verður aukin þjónusta við einstaklinga sem glíma við hjartasjúkdóma, sykursýki, lungnasjúkdóma, stoðkerfismein, kvíða og þunglyndi svo eitthað sé nefnt. Fagaðilar Heilsuborgar starfa í náinni samvinnu við aðra meðferðaraðila hvers einstaklings í þeirri viðleitini að tryggja heildræna meðferð og samfellu í þjónustu.
Hægt er að panta tíma hjá hverjum fagaðila eins og tíðkast í heilbrigðiskerfinu í dag. Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslans er með sama hætti og annarstaðar í heilbrigðiskerfinu. Þannig er þjónusta sérfræðilækna og sjúkraþjálfara niðurgreidd af Sjúkratryggingum Íslands en hver einstaklingur greiðir fyrir þjónustu annara fagaðila.
Sú nýjung sem Heilsuborg býður hinsvegar upp á til að mæta þeim kostnaði sem einstaklingar bera er að bjóða hópmeðferð fagaðila. Þannig mun næringarfræðingur bjóða reglulega fræðslu um næringu og mataræði, sjúkraþjálfarar bjóða hópþjálfun svo sem bakleikfimi og boðin er meðferð í hugrænni atferlismeðferð og sjálfsstyrkingu í hópum.
Rúsínan í pylsuendanum eru síðan samsett námskeið Heilsuborgar, Heilsulausnir. Þar er fléttað saman mati og meðferð fagaðila, fræðslu og hreyfingu við hæfi.
Sjá nánar undir Heilsulausnir.
