Heilsurækt

Þjálfun með stuðningi

LineBreak

Vilt þú vera viss um að þjálfa rétt?

 

Til að ná árangri og öðlast vellíðan eftir æfingar skiptir öllu að bera sig rétt að.

 

Þjálfun með stuðningi er einstaklingsþjálfun þar sem þú færð leiðbeiningar og stuðning fagfólks til að ná sem bestum árangri.  Þjálfun með stuðningi getur verið fyrsta skrefið í að taka á því í ræktinni og læra réttu handtökin – eða skerpa á því sem kannt nú þegar.  Í framhaldinu getur þú æft áfram á eigin vegum ef þú kýst, eða haldið áfram að njóta þess stuðnings sem þú telur þig þurfa.

Hjá Heilsuborg býðst stuðningur íþróttafræðinga og sjúkraþjálfara.  Íþróttafræðingar Heilsuborgar eru allir háskólamenntaðir og veita frábæran almennan stuðning.  En ef þú hefur lent í slysum eða áföllum mælum við með stuðningi sjúkraþjálfara.  Hafðu samband og kynntu þér málið. 


Þjálfun með stuðningi íþróttafræðings

Þjálfun með stuðningi sjúkraþjálfara

LineBreak