Í form fyrir golfið
Vilt þú komast í betra form og bæta golfsveifluna?
Almenn heilsa og gott líkamsástand er grunnurinn að því að geta notið þess að stunda golf.
Í form fyrir golfið byggir á æfingum til að auka styrk, þol, liðleika og jafnvægi ásamt því að gerðar eru æfingar sem markvisst miða að því að bæta golfsveifluna.
Hentar þeim sem vilja bæta árangur sinn í golfi, komast í betra form, fyrirbyggja meiðsl og bæta heilsuna.
Alltaf hægt að bætast í hópinn ef það er pláss - endilega hafið samband í síma 5601010
- 2x í viku á þri og fim
- Morgunhópur kl. 07:30 - 08:20 og 9:00- 9:50
- Hádegishópur kl. 12:05 -12.55
- Þjálfari: Anna Borg sjúkraþjálfari
Verð:
- Staðgreitt 89.000 15.september 2015 og verður í boði til 20.maí 2016 (9x4vikur)
- Áskrift kr. 12.500 á mán – binditími út tímabil.
- Áskrift kr. 14.600 á mán. - lágmarks.binditími 4x4 vikur
- Stakur mánuður – 4 vikur kr. 16.700
- Áskrift er ekki hægt að bóka á netinu
Val fyrir þá sem eru á námskeiðinu:
Ráðgjöf sjúkraþjálfara: Ef þú ert að kljást við stoðkerfiseinkenni eða vilt fá ráð um hvernig þú nýtir námskeiðið sem best þá er mögulegt að panta einstaklingsráðgjöf hjá Önnu Borg - Viðtalið er í 30 mín og kostar aukalega kr. 5000.
Golfkennsla: Á tímabilinu verður boðið upp á hópkennslu hjá golfkennara þar sem unnið verður með golfsveifluna.
Verð fyrir skiptið kostar aukalega kr.1000 og greiðist til golfkennara – innifalin boltafata.
