Sjúkraþjálfun
Sjúkraþjálfarar vinna að því að viðhalda og bæta heilsu og starfshæfni. Ráðgjöf, forvarnir og heilsuefling er mikilvægur þáttur í starfi sjúkraþjálfara vegna sérþekkingar þeirra á álagseinkennum og afleiðingum ýmissa sjúkdóma á stoðkerfi líkamans.
Sjúkraþjálfarar í Heilsuborg annast mat á ástandi stoðkerfis og ráðleggja viðeigandi þjálfun.
Boðið er upp á þjónustu sjúkraþjálfara í Heilsuborg.
Sjúkaþjálfarar starfa skv. samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Ef komið er með beiðni um sjúkraþjálfun frá lækni taka sjúkratryggingar þátt í kostnaði skv. verðskrá sjúkratrygginga Íslands
Sjúkraþjálfarar í Heilsuborg leiðbeina einnig við æfingaval í tækjasal ef um stoðfkerfisvandamál er að ræða.
Sjúkraþjálfarar sem starfa í Heilsuborg:
Ása Dagný Gunnarsdóttir
Fríða Brá Pálsdóttir
Kara Elvarsdóttir
Tímapantanir sem og afbókanir skal beina til móttöku Heilsuborgar í síma 560 1010
