Hugarlausnir framhald
Hentar þeim sem glíma við einkenni streitu, depurðar, kvíða og/eða þunglyndis og hafa lokið grunnnámskeið í Hugarlausnum.
Á námskeiðinu er haldið áfram að þjálfa þrisvar sinnum í viku, skv. forskrift hreyfiseðils. Auk þess er boðið upp á vikulega framhaldstíma í núvitundarhugleiðslu undir handleiðslu sálfræðinga. Hugleiðslutímarnir byggja á æfingum úr grunnnámskeiðinu en nýjar æfingar eru kynntar samhliða sem gefa fólki færi á að dýpka upplifun sína.
Tímasetningar: Hópurinn æfir klukkan 14:00 á mán., mið. og fös. Núvitundarhugleiðslan er klukkan 15:30 á mánudögum.
Námskeiðið hefst 12. janúar 2015.
Fagaðilar: Að námskeiðinu standa Elva Brá Aðalsteinsdóttir sálfræðingur og Guðni Valentínusson heilsufræðingur.
Verð: Hugarlausnir - framhald kr. 39.100 kr. (þ.e. 19.500 kr. pr. mánuð), hægt er að taka bara hreyfingarhlutann fyrir 29.800 kr. (14.900 kr. per mánuð) eða bara núvitundarhugleiðsluna á 12.000 kr. fyrir 8 vikur.
