---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Offitulausnir

LineBreak
Offitulausnir

Er námskeið sem hentar fólki  sem glímir við verulega offitu með eða án fylgisjúkdóma. Á námskeiðinu er unnið með hreyfingu, mataræði, skipulag daglegs lífs og hugarfar.  Námskeiðið er byggt upp svipað og Heilsulausnanámskeið Heilsuborgar með sérstakri áherslu á hreyfingu fyrir fólk í mikilli yfirþyngd. Sérstök fræðsla um offitu fylgir námskeiðinu. Fyrir þá sem vilja undirbúa sig fyrir magahjáveituaðgerð vegna offitu á Landspítala býðst undirbúningur og fræðsla.  Á námskeiðinu er þjálfað þrisvar í viku (klukkan 10:00 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga) en auk þess farið í mikilvægi þessa að hreyfa sig aukalega samhliða.  Þátttakendur eru leiddir áfram í breytingum á mataræði og ýmsum öðrum þáttum sem varða heilsuna.

 

Innifalið á námskeiðinu er:

  • Þjálfun þrisvar í viku undir handleiðslu íþróttafræðings.
  • Þjálfunin er  mán, mið og fös klukkan 10:00
  • Heilsumat hjá hjúkrunarfræðingi í upphafi námskeiðs og einstaklingsviðtöl þrisvar á árinu.
  • Mælingar í líkamsgreiningartæki (þar sem líkamssamsetning er mæld og grunnefnaskipti reiknuð) í upphafi og síðar á tveggja mánaða fresti.
  • Regluleg vigtun
  • Áhersla er lögð á að bæta mataræði og innleiða breytingar sem geta varað til langs tíma.
  • Fimm námskeið um þætti sem hafa veruleg áhrif á heilsu okkar og lífsgæði eru innifalin í Heilsulausnum. Tvö þeirra eru ætluð öllum þátttakendum en þrjú námskeið eru val þáttakenda.
  • Námskeiðin Borðum betur (mataræði 101) og Nærumst betur (mataræði 102) eru ætluð öllum þátttakendum. Þar er farið yfir mataræði og matarvenjur það að leiðarljósi að innleiða á kerfisbundinn hátt breytingar sem vara til langs tíma.
  • Síðan velja þátttakendur hvort þeir vilja halda áfram að vinna með mataræðið eða færa áhersluna á aðra mikilvæga þætti svo sem svefn, streitu, sjálfsstykringu eða hugarró. Þá verður hægt að velja þrjú af eftirtöldum námskeiðum, Eldum betur (mataræði 103), Sofum betur, Svengdarvitund, Sjálfsstyrking og/eða Núvitund. Þeir einstaklingar sem vilja gangast undir magahjáveituaðgerð á Landspítala sækja sértakt námskeið til undirbúnings aðgerðar.
  • Við þetta bætast svo fræðslufundir af fræðslufundaröð Heilsuborgarskólans. Sumir þessara fræðslufunda teljast til grunnstoða námskeiðsins en aðrir eru valbundnir.
  • Fræðsluefni og glærur fyrirlestra eru aðgengileg á lokaðri facebook síðu hópsins.

 

Þegar gera á breytingar á lífsháttum sem eiga að vara til langframa þarf að ætla sér tíma til að gera þessar breytingar. Þess vegna mælum við með ársnámskeiði. Þegar það hentar ekki er hægt að taka hvern áfanga fyrir sig og púsla áföngum saman eftir  þörfum hvers og eins. Hægt er að vera eingöngu í hreyfingu undir leiðsögn, taka mataræðið sérstaklega fyrir eða vinna með svefninn og hugarfarið með eða án annara þátta.  Ef þú ert ekki viss um hvað hentar þér getur þú fengið ráðgjöf hjúkrunarfræðings sem leiðbeinir þér næstu skref.



Verð fyrir námskeiðið í heild er 19.500 kr. á mánuði í eitt ár. 

Verð fyrir fyrsta fjögurra mánaða áfangan eingöngu er 24.500 kr.á mán (velji þátttakendur svo að klára árið greiða þeir 19.500 kr  á mánuði út árið).

Hægt er að taka stök fræðslunámskeið fyrir 19.500 kr. eða vera eingöngu í hreyfingarhluta námskeiðsins fyrir 31.800 kr. í 8 vikur (15.900 kr á mán) eða 13.900 kr. á mánuði í áskrift (lágmarksbinding í áskrift er 16 vikur eða 4 x 13.900).

 

Ætlar þú að taka næsta skref í átt að betri heilsu?


 Hringdu núna í síma 560 1010

 

LineBreak