---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Orkulausnir

LineBreak
Orkulausnir

Hentar einstaklingum sem glíma við orkuleysi, þrekleysi, verki, svefnvanda, andlega vanlíðan eða áþekk einkenni. Einnig þeim sem glíma við vefjagigt eða þeim sem vilja komast af stað í þjálfun eftir veikindi af ýmsum toga.


Unnið er með hugsun, hegðun, hreyfingu og líðan. Námskeiðið miðar að því að innleiða jafnvægi í daglegt líf, vinna með streituþætti og lágmarka þá. Góð leið fyrir þá sem vilja vinna með sitt innra og ytra jafnvægi ásamt því að koma á reglulegri hreyfingu.

 

Innifalið á námskeiðinu er:

  • Þjálfun undir leiðsögn sjúkraþjálfara tvisvar í viku -  8 vikur
  • Þri. og fim. kl. 10:00 eða 15:00
  • Framhaldshópur þri. og fim. kl. 14:00
  • Leidd slökun í 20 mín í lok þjálfunartíma einu sinni í viku
  • Kennsla í réttri líkamsstöðu og líkamsbeitingu, þjálfun miðuð við getu hvers einstaklings
  • Einstaklingsviðtal við hjúkrunarfræðing. Þar er meðal annars er hugað að streitutengdum þáttum og andlegri líðan með áherslu á að ná árangri með innri streituþætti, hugað að mataræði, hindrunum til að stunda hreyfingu og almennu heilsufari.

 

Hefst 13. janúar 2015

Verð kr. 33.800 fyrir 8 vikur.

Framhaldsnámskeið kr. 27.800,-

 

 

Sjá viðtal við Lindu Gunnarsdóttur um Orkulausnir

LineBreak