Þarfnast þú aukinnar orku eða betri svefns?
Orkulausnir kl. 14:00 henta einstaklingum sem glíma við orkuleysi, þrekleysi, verki, svefnvanda, andlega vanlíðan eða áþekk einkenni. Einnig þeim sem glíma við vefjagigt eða þeim sem vilja komast af stað í þjálfun eftir veikindi af ýmsum toga.
Unnið er með hugsun, hegðun, hreyfingu og líðan. Námskeiðið miðar að því að innleiða jafnvægi í daglegt líf, vinna með streituþætti og lágmarka þá. Orkulausnir eru góð leið fyrir þá sem vilja vinna með sitt innra og ytra jafnvægi ásamt því að koma á reglulegri hreyfingu.
Þú getur valið að skipta greiðslum upp í mánaðargreiðslur.