Félagsráðgjöf
Hugrún Linda Guðmundsdóttir
Félagsráðgjafi og markþjálfi
Hugrún er félagsráðgjafi með MA próf til starfsréttinda frá Háskóla íslands. Hún er með alþjóðleg réttindi sem markþjálfi ACC frá International Coach Federation og hefur um 500 tíma þjálfun á því sviði. Hugrún er einnig með diplomanám í mannauðsstjórnun og stundar nú diplomanám á meistarastigi í jákvæðri sálfræði.
Hugrún hefur mikla reynslu af fyrirtækjarekstri og mannauðsstjórnun, er í viðbragðshóp og áfallateymi Rauða krossins og sinnir þar útköllum. Í starfsnámi sínu vann Hugrún á Reykjalundi. Síðustu ár hefur Hugrún unnið mikið með atvinnuleitendum og vann rannsókn á atvinnuleitendum 50 ára og eldri auk þess að vera stundakennari í Háskóla Íslands í áfanga um atvinnuleysi og afleiðingar þess. Hugrún rekur nú fyrirtækið Líf og Starf sem sérhæfir sig í að aðstoða fólk við að ná jafnvægi og hámarka vellíðan og virkni í eigin lífi. Hugrún er sjálfstætt starfandi á Heilsuborg.
Hugrún veitir viðtöl, ráðgjöf, fræðslu, markþjálfun, handleiðslu, stuðning og eftirfylgni, sálræna og félagslega aðstoð í kjölfar breytinga eða erfiðleika í lífi eða starfi, sinnir áfallahjálp og áfallavinnu. Þjónustan er ætluð einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og stofnunum.
Hugmyndafræði sem Hugrún styðst við í sinni vinnu er m.a. styrkleikanálgun, jákvæð sálfræði og hugmyndafræði um vellíðan (well-being) sem byggir á rannsóknum á þeim þáttum sem hafa áhrif á að lífið gangi vel. Hún notar aðferðarfræði markþjálfunar, áhugahvetjandi samtalstækni og lausnamiðaða nálgun. Hugrún er auk þess Jóga Nidra kennari sem er ævaforn hugleiðslu og slökunaraðferð og býður uppá námskeið og einkatíma.
Símanúmer: 560 1010 / 898 0500
