---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Einstaklingsviðtöl

LineBreak
buy ortho tri cyclen,buy ventolin,buy albuterol,buy xalatan,buy elocon,buy tretinoin,buy combivent,buy clindamycin,albuterol inhaler

Um einstaklingsviðtöl

Einstaklingsviðtöl við sálfræðinga eru 50 mínútur að lengd.  Í fyrsta tíma hjá sálfræðingi á sér stað kortlagning á vanda skjólstæðings og fer þá fram svokallað greiningarviðtal.  Þá aflar sálfræðingur ýmiss konar upplýsinga um bakgrunn skjólstæðingsins og leggur alla jafna fyrir skimunarlista sem hjálpa sálfræðingnum að koma auga á þann vanda sem helst þarf að vinna með í meðferð.  Sálfræðingar hafa þagnarskyldu og farið er með allar upplýsingar sem aflað er í viðtölum sem trúnaðarmál.  Í þessu sambandi er rétt að benda á að í upphafsviðtali og í öllum viðtölum sem á eftir koma stýrir skjólstæðingurinn því um hvað hann fjallar í viðtölunum.  Engum er skylt að svara öllum spurningum sálfræðinga.  Um leið mætti hafa í huga að sálfræðingurinn byggir meðferðarvinnu sína á þeim upplýsingum sem skjólstæðingur lætur honum í té.  Eftir því sem upplýsingarnar eru ítarlegri því meiri líkur eru á að skjólstæðingur njóti markvissrar og viðeigandi meðferðar.   

 

Tímapantanir, greiðsla fyrir viðtöl og forföll

Móttaka Heilsuborgar tekur við tímapöntunum í síma 5601010.  Einnig er hægt að panta tíma með því að hringja í eða senda viðkomandi sálfræðingi tölvupóst. 

 

Viðtalið við sálfræðing kostar 13.000 krónur.  Greiðsla er innt af hendi fyrir hvert viðtal í móttöku Heilsuborgar.  Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við sálfræðimeðferð.  Í þeim tilvikum þar sem stéttarfélög endurgreiða hluta af kostnaði er þess krafist að kvittunum fyrir greiðslu viðtala sé framvísað.  Við hvetjum því skjólstæðinga okkar til að halda öllum kvittunum til haga. 

 

Heilsuborg sendir áminningu um bókað viðtal með SMS skilaboði daginn fyrir viðtal.  Beðið er um að forföll séu tilkynnt í síma 5601010 eða með tölvupósti á fyrir kl. 17:00 daginn sem skilaboðin berast.  Ef forföll eru ekki tilkynnt eða ef þau berast Heilsuborg eftir tilætlaðan afboðunartíma  ber viðkomandi að greiða viðtalið.  Þetta sama á við ef þriðji aðili hefur samþykkt að greiða fyrir viðtölin.  Þeir samstarfsaðilar sem Heilsuborg vinnur með (Félagsþjónustan, endurhæfingarstöðvar og fleiri) greiða ekki fyrir viðtöl sem ekki er mætt í og fellur það í hlut viðkomandi skjólstæðings að greiða fyrir slík viðtöl, ef ekki er afboðað með tilskyldum fyrirvara.  

LineBreak