Hugræn atferlismeðferð
Hugræn atferlismeðferð (HAM) er sálfræðileg meðferð sem hefur verið í örum vexti síðasta aldarfjórðunginn og hvílir á sterkum stöðum fjölmargra árangursrannsókna. Hugræn atferlismeðferð byggist á því grundvallaratriði að hugsun okkar hefur mikil áhrif hvernig okkur líður og hvernig við hegðum okkur. Í HAM er gengið út frá því að með því að gera breytingar á hugsun okkar getum við haft áhrif á líðan okkar og hegðun til hins betra. Breytingar eru ekki gerðar á hvaða hugsunum sem er, heldur þeim sem eru óraunsæjar og óhjálplegar og mjög svo tengdar vanlíðan skjólstæðings. Í sumum tilvikum er einnig farið skipulega í breytingar á hegðun skjólstæðings með það að markmiði að bæta líðan. Fjöldi rannsókna sýnir að HAM getur skilað góðum árangri við ýmsum sálrænum vanda og má þar helst nefna þunglyndi, kvíðaraskanir, þ.á.m. áfallastreituröskun, áfengis- og vímuefnavanda, átraskanir, svefnvanda og lítið sjálfstraust. Eftirfylgdarrannsóknir hafa jafnframt sýnt að árangur HAM helst oft langt eftir að meðferð lýkur. HAM kemur fyrir í öllu starfi Heilsuborgar sem snýr að bættri andlegri líðan. Þannig má sjá að HAM er samofin allri meðferðarvinnu sálfræðinga Heilsuborgar og er til umfjöllunar á þeim fjölmörgu námskeiðum sem eru í boði á hverjum tíma
