Núvitund
Núvitund er þýðing á enska orðinu „mindfulness“ og á rætur sínar annars vegar í hugrænni atferlismeðferð og hins vegar í aldagamalli hugleiðsluhefð Austurlanda. Núvitund snýst um það að vita hvað er að gerast á meðan það er að gerast. Einsetja sér að beina athyglinni að því sem er að gerast á meðan það er að gerast án þess að taka afstöðu eða fella dóma. Núvitund er í raun leið til að ná áttum. Með aukinni meðvitund erum við betur í stakk búin til að takast á við þær aðstæður sem við stöndum frammi fyrir í okkar daglega lífi og meiri líkur verða á meðvitaðri og yfirvegaðri ákvörðun sem mun líklega draga úr þeirra vanlíðan sem glímum við hverju sinni.
Meginmarkmið með núvitundarþjálfun:
- Að verða meðvitaðri um tilfinningar og hugsanir og því sem þú finnur fyrir í líkamanum.
- Að taka meiri þátt í því sem þú upplifir og finnur fyrir.
- Að vera í núinu, vakandi fyrir því sem er að gerast hér og nú.
- Að bregðast við af yfirvegun.
Niðurstöður rannsókna benda til þess að reglubundin iðkun núvitundarhugleiðslu geti haft margvísleg jákvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu. Regluleg iðkun getur:
- Dregið úr einkennum streitu, depurðar, kvíða og annarra andlegra raskanna.
- Styrkt einbeitingu okkar - minni líkur verða á að við festumst í hugsunum okkar eða látum umhverfið trufla okkur.
- Eflir sköpunarkraft og viðbragðsflýti.
- Styrkt ónæmiskerfið og dregið úr háum blóðþrýstingi.
- Hjálpað til við að lifa við verki og mögulega dregið úr verkjum.
- Gert okkur meðvitaðri - tökum betur eftir okkur sjálfum og umhverfinu, hugsun verður skýrari og við getum frekar valið viðbrögð okkar.
- Bætt almenn lífsgæði - þeir sem stunda reglubunda hugleiðslu verða sáttari og ánægðari.
Í Heilsuborg er hægt að vinna með núvitundarþjálfun í einstaklingsviðtölum eða á námskeiðinu Hugarlausnir
