Heilsurækt

Andleg líðan og verkir

LineBreak

Andleg líðan og verkir

Námskeiðið er ætlað þeim sem glíma við þráláta verki sem þeim finnst þeir ekki hafa stjórn á og andleg líðan er farin að bera þess merki. Vandi þátttakendanna getur ýmist verið ný tilkominn eða langvinnur og getur átt sér augljósar orsakir eða verið án læknisfræðilegra skýringa. Námskeiðið fer fram í litlum hópum.

 

Markmiðið er að efla færni þátttakenda til að draga úr verkjaupplifun og/eða lifa með sínum verkjum. Sérstök áhersla verður lögð á að vinna með viðhorf til verkja.

 

Um námskeiðið: Byggt er á hugrænni atferlismeðferð og núvitund (mindfulness). Í upphafi er lögð áhersla á að fjalla um samspil andlegrar og líkamlegrar heilsu. Kenndar verða aðferðir til að takast á við verki með hugrænum og atferlistengdum aðferðum en einnig með iðkun núvitundar og samkenndar. Markmiðið er m.a. að þátttakendur læri aðferðir til að breyta eigin líðan með því að endurmeta hugsanir sínar og stýra hegðun sinni. Núvitundarþjálfun miðar að því að hjálpa fólki að öðlast skilning á líðan sinni, andlegri jafnt sem líkamlegri, og velja viðbrögð sem eru hverjum og einum mest í hag. 

 

Fyrirkomulag: Kennt er vikulega í fimm skipti, tvær klukkustundir í senn. Byggt er á fræðslu, verkefnavinnu, umræðum, heimaverkefnum og hugleiðsluæfingum.

 

Tímasetning: Námskeiðið hefst þriðjudaginn 25. apríl  2017 kl 13.30

 

Námskeiðsgögn: Handbók er afhent í upphafi námskeiðs, sem inniheldur bæði fróðleik og ýmis verkefni. Einnig fá þátttakendur hugleiðsluæfingar sem byggja á hugmyndafræði núvitundar og samkenndar.

 

Leiðbeinendur: Elva Brá Aðalsteinsdóttir og Sigrún Ása Þórðardóttir sálfræðingar í Heilsuborg.

 

Verð: 48.200 krónur

 

 

 

LineBreak