Heilsurækt

Streita og svefntruflanir

LineBreak

tveggja kvölda námskeið: Streitustjórnun 



Ef þú ert farin að þrá frekara jafnvægi í einkalífi og starfi þá er þetta rétta námskeiðið fyrir þig.

 

Námskeið í streitustjórnun - Að vera hér og nú

  • Er þreytan og orkuleysið að gera útaf við þig?
  • Áttu erfitt með að halda einbeitingu þar sem hugurinn er út um allt?
  • Er tilfinningaþráðurinn styttri en venjulega?
  • Áttu orðið erfitt með að vera raunverulega til staðar og njóta?

Streita birtist í mörgum  myndum. Hún getur birst í líkamlegum einkennum, hugsun, hegðun og tilfinningalegum viðbrögðum og getur haft neikvæð áhrif á daglegt líf okkar á ýmsan máta. Til þess að hægt sé að ná árangri í streitustjórnun er mikilvægt að öðlast innsýn inní eigið ástand. Á þessu námskeiði lærirðu að nema staðar, þekkja einkennin, skoða hvað veldur og fá innsýn í leiðir til að vinna með streituna þína á uppbyggjandi máta. Sérstök áherlsa verður lögð á Núvitund (mindfulness) sem árángursríka leið til að vinna með streitu. 

 

Á þessu námskeiði:

  • Öðlast þú innsýn inn í streitukerfið þitt
  • Lærir þú að meta eigin streitueinkenni og streituvalda
  • Leiðbeinandi er Sigrún Ása Þórðardóttir, sálfræðingur í Heilsuborg

 



 nánari tímasetning síðar

Skráning á eða í síma 560 1010

 

 

 


Sjá viðtal við Erlu, Mögnu og Sigrúnu í Morgunblaðinu í september 2012

 

LineBreak