Núvitund framhald
Framhaldstímar í núvitundarhugleiðslu:
Mörgum þykir erfitt að iðka núvitundarhugleiðslu upp á eigin spýtur að loknu námskeiði. Nú gefst einstaklingum sem lokið hafa Hugarlausnum eða námskeiðum í núvitund (mindfulness) kostur á að mæta vikulega í núvitundarhugleiðslutíma undir leiðsögn sálfræðinganna Sigrúnar Ásu og Elvu Brá. Tímarnir henta þeim sem kjósa að halda sér við og dýpka upplifun sína undir leiðsögn fagaðila.
Tímasetning: mánudaga kl. 13.00. Námskeiðið er 8 vikur.
Verð: 13.000 kr. fyrir 8 vikur.
Skráning á eða í síma 5601010. Nánari upplýsingar er að finna á Heilsuborg.is. Einnig má senda tölvupóst á
