Heilsurækt

Núvitund

LineBreak

Hentar þeim sem glíma við einkenni streitu, depurðar, kvíða og/eða þunglyndis.

 

Unnið er með núvitund (mindfulness) undir leiðsögn sálfræðings. Á námskeiðinu er farið yfir hugmyndafræðina á bak við núvitund og kenndar einfaldar hugleiðsluæfingar sem hægt er að innleiða í daglegt líf. Áhersla er lögð á æfingar milli tíma. 

 

Námskeiðinu fylgir einnig tveggja kvölda streitustjórnunarnámskeið í umsjón Sigrúnar Ásu sálfræðings.  Á þessu námskeiði þátttakendum kennt að nema staðar, þekkja streitueinkenni sin, skoða hvað veldur og fá innsýn í leiðir til að vinna með streituna á uppbyggjandi máta. Sérstök áhersla er lögð á núvitund sem árangursríka leið til að vinna með streitu. 


Innihald námskeiðsins:
 

  • Viðtal við sálfræðing í upphafi námskeiðs  þar sem farið er yfir sögu viðkomandi einstaklings og hugtakið núvitund er kynnt.
  • Námskeið í núvitund undir handleiðslu sálfræðinga. Fjögur skipti í tvo tíma í senn á miðvikudögum (fjóra miðvikudaga í röð)
  • Aðgangur á netinu að hugleiðslu með æfingum sem farið er í á námskeiðinu.
  • Fyrirlestur þar sem farið er yfir helstu streituvalda og hvað hægt sé að gera til að bregðast við þeim. Þátttakendur kortleggja streitueinkenni sín og streituvalda og gera að auki drög að plani um það sem því finnst að það þurfi að vinna með.

 

Námskeiðið hefjast

 
Núvitundin sem byrjar 4.janúar 2017 verður á miðvikudögum klukkan 13:00.

 

 

 

Fagaðilar:  Elva Brá Aðalsteinsdóttir og  Sigrún Ása Þórðardóttir sálfræðingar.

 

 

Verð: 35.900 kr.

 

Skráning á  eða í síma 5601010. Nánari upplýsingar er að finna á Heilsuborg.is.  Einnig má senda tölvupóst á


Núvitund:
Núvitund er þýðing á enska orðinu „mindfulness“ og á rætur sínar annars vegar í hugrænni atferlismeðferð og hins vegar í aldagamalli hugleiðsluhefð Austurlanda. Núvitund snýst um það að vita hvað er að gerast á meðan það er að gerast. Einsetja sér að beina athyglinni að því sem er að gerast á meðan það er að gerast án þess að taka afstöðu eða fella dóma.   Þátttakendur fara í upphafi námskeiðsins í 30 mínútna einstaklingsviðtal til sálfræðings þar sem hugtakið núvitund er kynnt fyrir þeim og farið er yfir stöðu einstaklingsins í dag.  Þátttakendur hittast svo vikulega í fjögur skipt, tveir tímar í senn,  þar sem farið er í hópþjálfun í núvitund.  Á námskeiðinu eru kenndar einfaldar hugleiðslu æfingar sem hægt er að innleiða í daglegt líf.  Áherlsa er lögð á æfingar milli tíma. Meginmarkmið með núvitundarþjálfun: 

 

  • Að verða meðvitaðri um tilfinningar og hugsanir og því sem þú finnur fyrir í líkamanum.
  • Að taka meiri þátt í því sem þú upplifir og finnur fyrir.
  • Að vera í núinu, vakandi fyrir því sem er að gerast hér og nú.
  • Að bregðast við af yfirvegun.

 

Regluleg hreyfing:

Það er marg sannað að regluleg hreyfing getur hjálpað þeim sem eru að glíma við þunglyndi, kvíða eða streitu verulega.  Heilsuborg mælir með að allir þátttakendur á námskeiðinu stundi reglulega líkamsrækt samhliða námskeiðinu.  Hægt er að bóka sig hjá íþróttafræðing með sérþekkingu á uppsetningu æfinga skv. hugmuyndafræði hreyfiseðils fyrir þunglyndi, streitu og kvíða og fá hann til að setja upp æfingaprógram á æfingalykil, sjá nánar undir lyklaþjálfun.  Einnig eru ýmsir möguleikar í boði fyrir þá sem vilja æfa í hóp.

 

 

LineBreak