Heilsurækt

Sjálfstyrking og sjálfsöryggi

LineBreak

Námskeiðið er fyrir fólk með lágt sjálfsmat, kvíða og þunglyndi. Námskeiðið fer fram í litlum hópum.

 

 

 

 

Markmiðið: er að þróa samkennd í eigin garð (Self-compassion), upplifa tilfinningarlegt jafnvægi og sátt. Með aukinni samkennd og núvitund (Mindfulness) í daglegu lífi öðlast þátttakendur sjálfsöryggi og jákvæðari sjálfsmynd.

 

Um námskeiðið:

Byggt er á nálgun Samkenndarsálfræðinnar (Compassion Focused Therapy).

Unnið er að því að þátttakendur læri að sýna sjálfum sér og öðrum samkennd þegar þeir takast á við erfiðleika og þjáningar. Með meiri skilningi á sjálfum sér og manneskjunni í heild öðlast þátttakendur aukna sátt og von. Áhugahvöt og drifkraftur eykst, sem gagnast sérstaklega vel þegar unnið er að því markmiði að lifa heilsusamlegu og hamingjuríku lífi. Jafnframt verður notast við núvitundaræfingar (mindfulness). Samkennd og núvitund hjálpa þátttakendum að auka þol gagnvart hvers kyns vanlíðan s.s lágu sjálfsmati, kvíða og þunglyndi

 

Farið verður yfir eftirfarandi þætti m.a.

  • Fræðsla um þróun sjálfsmyndar 

• Áhrif og afleiðingar neikvæðrar sjálfsmyndar á líf okkar 

• Unnið er með mótun samkenndar og sáttar í eigin garð 

• Tengsl hugsana, tilfinninga og hegðunar skoðuð ásamt viðhaldandi þáttum 

• Áhersla er lögð á að styrkja sjálfsmynd hvers og eins 

• Uppbyggilegt sjálfstal út frá eiginleikum samkenndar og núvitundar

• Að finna eigin lífsgildi, læra að lifa samkvæmt þeim og ná markmiðum

• Uppbygging heilbrigðra tengsla, ákveðni og sjálfsöryggis í samskiptum 

• Þátttakendur munu m.a læra að nota hugleiðslur, jákvætt sjálfstal og stýrða athygli 

 

Fyrirkomulag: Kennt er vikulega í 8 skipti, 2 klukkutímar í senn.

Uppbygging tímanna er í formi fyrirlestra, hóp- og einstaklingsverkefna, umræðna auk hugleiðsluæfinga og heimaverkefna.

 

Tímasetning: Námskeiðið hefst mánudaginn 27. mars 2017  kl .09.30

Leiðbeinendur: eru Anna Sigurðardóttir og Guðrún Ingólfsdóttir sálfræðingar í Heilsuborg.

 

Verð: 68.500 krónur

 

LineBreak