Við tökum með þér fyrstu skrefin í líkamsrækt. Átta vikna grunn hreyfinámskeið fyrir byrjendur eða þá sem eru að koma sér af stað eftir hlé.
SKRÁNING
19.900kr – 39.800kr
| Næsta námskeið | Staða námskeiðs | Tímasetningar |
|---|---|---|
| 13. janúar - 4. mars | Laus pláss | 10:00 mánudaga og miðvikudaga |
| 13. janúar - 4. mars | Laus pláss | 18:30 mánudaga og miðvikudaga |
| 14. janúar - 5. mars | Laus pláss | 06:10 þriðjudaga og fimmtudaga |
INNIFALIÐ
- 8 vikur x tveir tímar á viku undir leiðsögn íþróttafræðinga Heilsuborgar
- Upphafs- og lokaviðtal við íþróttafræðing
- Stöðluð þjálfunaráætlun í tækjasal fyrir byrjendur, leiðsögn hjá þjálfara á völdum tímum
- Aðgangur að tíma í mælingu á líkamsgreiningartæki sem sýnir samsetningu líkamans
- Lokuð Facebook síða fyrir þátttakendur fyrir umræður, fróðleik og hvatningu
- Aðgangur að vel búnum tækjasal
- Heitur pottur og sauna
- OPNIR TÍMAR OG AÐSTOÐ Í TÆKJASAL
STUNDASKRÁ NÁMSKEIÐS
| Mánudaga og miðvikudaga | kl. 10:00 |
| Mánudaga og miðvikudaga | kl. 18:30 |
| Þriðjudaga og fimmtudaga | kl. 06:10 |
Veistu ekki hvernig þú átt að byrja? Ertu óörugg(ur) að taka þátt í líkamsrækt? Ef þú hefur lítið hreyft þig í langan tíma er þetta námskeiðið fyrir þig.
Mín besta hreyfing er 8 vikna námskeið, hugsað fyrir þá sem vilja taka fyrstu skrefin. Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að hafa áttað sig á eigin hreyfigetu jafn í hóptímum sem og í tækjasal og í samráði við þjálfara Heilsuborgar meta næsta erfiðleikastig.
Kennt er tvisvar í viku og við bjóðum þrjár tímasetningar. Þátttakendur geta mætt á þessum tímum eins og best hentar.
Við leggjum sérstaka alúð við það að aðstoða við fyrstu skrefin í hreyfingunni. Þess vegna erum við með persónulegt viðtal við íþróttafræðing í upphafi og í lok námskeiðs. Þannig er hægt að kortleggja stöðuna og setja raunhæf markmið um framhaldið.
Þjálfarar Heilsuborgar eru allir með háskólamenntun í sínu fagi. Þeir vita vel að það getur verið erfitt að byrja að hreyfa sig. Í upphafi er vel farið yfir hvernig best er að beita sér þegar æfingarnar eru gerðar því árangurinn ræðst af því; æfing sem er rangt gerð getur gert illt verra. Þjálfararnir vita líka að þarfir og geta fólks eru ólík og fylgjast vel með þátttakendum í tímum. Þeir gæta þess að ekki sé farið af stað með einhverjum látum og að álagið sé hæfilegt.
Jafnframt fylgir stöðluð þjálfunaráætlun í tækjasal Heilsuborgar. Þátttakendum býðst að koma á völdum tímum í stundatöflu og hitta þjálfara Heilsuborgar sem eru til aðstoðar við að stilla tæki og leiðbeina um notkun á tækjasal.
Þú sérð árangurinn
Þátttakendum býðst án aukakostnaðar að láta fagfólk Heilsuborgar mæla samsetningu líkamans. Mælingin er gerð á líkamsgreiningartæki og sýnir m.a. grunnefnaskiptin, fitu- og vöðvamassa. Með þessar upplýsingar í höndum er auðveldara að átta sig á stöðunni og taka næstu skref af öryggi.
„Mér fannst gaman að vera hjá ykkur og get miklu meira en ég hélt að ég gæti.“
„Ég finn gríðarlega mikinn mun á þoli og styrk en það besta er hvað ég finn mikinn mun á fötunum mínum.“
„Ég er mjög jákvæður og sáttur með allt sem var gert á námskeiðinu.“
„Ég hef alltaf verið að drepast í bakinu, gat ekki krosslagt fætur vegna þess að þá versnaði verkurinn. Nú get ég krosslagt fætur og finn ekki fyrir bakinu. Er mun þolnari og finn mun á mér þegar ég er í blaki með vinum mínum.“
„Ég er ánægð hvað tónlistin er spiluð lágt, ég þoli ekki hávaða.“
„Maðurinn minn hefur alltaf þurft að stoppa og bíða eftir mér þegar við erum saman í göngu en nú er ég alltaf samferða honum. Mér finnst frábært að finna hvað þolið hefur aukist.“
„Ég gat ekki mætt í fyrstu tímana vegna kvíða, var ánægð að þið voruð í sambandi og hvöttuð mig til að koma. Nú hefur kvíðinn minnkað mikið og mér líður vel í umhverfinu sem Heilsuborg býður uppá.“
„Ég náði markmiði mínu og er miklu orkumeiri. Er ánægð hvað þetta hefur verið hvetjandi og flott námskeið.“
„Ég hef alltaf hætt á öllum námskeiðum sem ég hef farið í en ekki þessu.“
Share on facebook
Facebook
Share on twitter
Twitter
Share on print
Print
HEILSUBORG - ALLT ANNAÐ LÍF!
Tengdar vörur
-
Einstaklingar
HREYFIMAT OG HEILSUMAT Í EINUM PAKKA. SÉRSTAKT TILBOÐ!
25.800kr23.220kr Setja í körfu