Í Hópeinkaþjálfun æfa fjórir eða fleiri saman á sama tíma undir styrkri stjórn íþrótta- og heilsufræðinga Heilsuborgar, sem gæta þess að æfingarnar séu rétt gerðar. Æfingar eru sniðnar að getu hvers og eins og þannig stuðlað að því að allir í hópnum nái þeim árangri sem þeir sækjast eftir.
SKRÁNING
37.900kr 34.900kr
INNIFALIÐ
- Þjálfun x 2 í viku mán. og mið. kl. 8:30, 12:00 eða 13:30.
eða þri. og fim. 16:30. - Fjórar vikur að lágmarki
- Mæling á samsetningu líkamans í upphafi og lok tímabils
- Stöðluð æfingaáætlun í tækjasal
- Heitur pottur og gufa
- OPNIR TÍMAR OG AÐSTOÐ Í TÆKJASAL
STUNDASKRÁ NÁMSKEIÐS
| Mánudaga og miðvikudaga | kl. 08:30–09:20 |
| Mánudaga og miðvikudaga | kl. 12:00-12:50 |
| Mánudaga og miðvikudaga | kl. 13:30 – 14:20 |
| Þriðjudaga og fimmtudaga | kl. 16:30–17:20 |
Í litlum hópi fæst meiri og persónulegri stuðningur en í stærri hópum. Hópeinkaþjálfun er ódýrari en einkaþjálfun og hentar bæði þeim sem eru að koma sér af stað í hreyfingu og einnig þeim sem hafa verið í einstaklingsþjálfun eða hafa annan góðan grunn.
Í upphafi setja þátttakendur sér persónuleg markmið um árangur og vinna svo markvisst að þeim. Mælingar eru gerðar í upphafi og lok tímabils. Áhersla er lögð á áhrifaríkar og fjölbreyttar æfingar sem styrkja, auka þol og koma þér í gott form.
Hvert þjálfunartímabil er fjórar vikur en þó er hægt að byrja í hópi sem er þegar farinn af stað.