Námskeiðið er ætlað þeim sem finna fyrir kvíða eða depurð og vilja læra leiðir til að bæta líðan sína.
KAUPA
36.000kr – 72.000kr
Meginmarkmið námskeiðsins er að auka skilning þátttakenda á eigin vanda og þjálfa í aðferðum HAM til að takast á við hann. Á námskeiðinu er veitt fræðsla um kvíða og depurð og farið yfir orsakir, áhrif á daglegt líf og hvað getur hjálpað við að rjúfa vítahring vanlíðunar. Tengsl hugsana, hegðunar og tilfinninga eru skoðuð. Jafnframt eru kenndar leiðir til að skoða og endurmeta hugsanamynstur og breyta hegðun sem viðheldur tilfinningavandanum.
Námskeiðið fer fram í hóp og byggist á fræðslu, umræðum og heimaæfingum. Áður en námskeiðið hefst fer hver þátttakandi í forviðtal (30 mínútur) hjá sálfræðingi. Í lok námskeiðs er lokaviðtal við sálfræðing til að meta árangur og leggja línur varðandi framhaldið.
VERÐSKRÁ
| Heildarverð | 72.000 kr |
| Greiðslur pr. mánuð | 36.000 kr |
INNIFALIÐ
- Forviðtal við sálfræðing í upphafi námskeiðs (30 mín.)
- Lokaviðtal við sálfræðing (30 mín.)
- Umræður í hópi undir handleiðslu sálfræðinga. Sex skipti í tvo tíma í senn
- Fræðsla um HAM (hugræn atferlismeðferð)
- Fræðsla um kvíða og þunglyndi
- Fræðsla um viðhorf og lífsreglur
- Fræðsla um samskipti
- Fræðsluefni og verkefni
- Þjálfun í verkfærum HAM
STUNDASKRÁ NÁMSKEIÐS
| Fimmtudagar | kl. 08:45-10:45 |
Share on facebook
Facebook
Share on twitter
Twitter
Share on email
Email
Share on print
Print