Vilt þú styrkjast og auka liðleikann með því að stunda jóga en finnst erfitt að gera æfingar á dýnu eða fara á fjóra fætur?
KAUPA
17.150kr – 41.500kr
Vilt þú styrkjast og auka liðleikann með því að stunda jóga en finnst erfitt að gera æfingar á dýnu eða fara á fjóra fætur?
Jógalausnir eru ætlaðar þeim sem vilja stunda jóga en þurfa stuðning og leiðsögn.
Lögð er áhersla á að kenna jógaæfingar í standandi stöðu og á stólum, en á seinni hluta námskeiðs verður boðið upp á að gera æfingar á dýnu fyrir þá sem kjósa það.
Markmiðið með Jógalausnum er að þátttakendur:
Auki styrk, liðleika, stöðugleika og jafnvægi.
Upplifi aukna vellíðan.
Læri slökun, öndunaræfingar og aðra tækni til að róa hugann.
Öðlist aukna líkamsvitund og þjálfist í góðri líkamsbeitingu í jógaæfingum.
Finni sín mörk í jógaæfingum, hvað þarf að varast og hvar styrkleikar liggja.
Námskeiðið er 8 vikur og kennt er tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 15:00.
Jógalausnir (grunn- og framhaldsnámskeið) hefjast á ný 3. september.
VERÐSKRÁ
| Grunnur | |
| Heildarverð. | 41.500 kr |
| Greiðslur pr. mán. | 20.750 kr |
| Framhald | |
| Heildarverð. | 34.300 kr |
| Greiðslur pr. mán. | 17.150 kr |
INNIFALIÐ
- Þjálfun undir handleiðslu sjúkraþjálfara í 8 vikur, tvisvar í viku
- Kennsla í réttri líkamsstöðu og líkamsbeitingu
- Einstaklingsviðtal við sjúkraþjálfara í upphafi námskeiðs
- Æfingar og slökun
- Aðgangur að opnum tímum og opnum fyrirlestrum í Heilsuborg
- Aðgangur að vel búnum tækjasal Heilsuborgar
STUNDASKRÁ NÁMSKEIÐS
| Þriðjudaga | kl. 15:00 - 15:55 |
| Fimmtudaga | kl. 15:00 - 15:55 |
Share on facebook
Facebook
Share on twitter
Twitter
Share on email
Email
Share on print
Print