Stoðkerfisskólinn er ætlaður þeim sem eiga í erfiðleikum með ýmis störf og líkamsþjálfun vegna stoðkerfisvandamála.
SKRÁNING
62.900kr
| Næsta námskeið | Staða námskeiðs | Tímasetningar |
|---|---|---|
| 27. nóvember - 29. janúar | Uppselt - biðlisti | 11:00 - 11:55 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga |
| 5. febrúar - 25. mars | Laus pláss | 11:00 - 11:55 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga |
| 15. apríl - 3. júní | Laus pláss | 11:00 - 11:55 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga |
INNIFALIÐ
- Mikil fræðsla um stoðkerfið og hvernig hægt er að örva bata þess og þar með lágmarka eða losna við verki
- Kennsla í réttri líkamsbeitingu við æfingar og algeng störf á heimili eða vinnustað
- Æfingar og slökun
- Aðgangur að vel búnum tækjasal
- Aðgangur að opnum tímum og þjónustu í tækjasal
- Aðgangur að tímum í mælingu á líkamsgreiningartæki sem sýnir samsetningu líkamans
- Heitur pottur og sauna
- OPNIR TÍMAR OG AÐSTOÐ Í TÆKJASAL
STUNDASKRÁ NÁMSKEIÐS
| Mánudaga | kl. 11:00-11:55 |
| Miðvikudaga | kl. 11:00-11:55 |
| Föstudaga | kl. 11:00-11:55 |
Markmið skólans er að efla hreyfigetu og auka sjálfstæði í þjálfun.
Í Stoðkerfisskólanum er lögð áhersla á fræðslu um stoðkerfið og nemendum kenndar leiðir til uppbyggingar. Námið í Stoðkerfisskólanum miðar að því að bæta líkamsvitund, líkamsbeitingu og hreyfifærni. Nemendum er kennt að létta á einkennunum, þekkja eigin þolmörk og auka álagsþol sem stuðlar að auknu þreki, bæði í leik og starfi.
Eftir Stoðkerfisskólann eiga nemendur hans að þekkja grunnatriði í líffæra- og lífeðlisfræði sem hjálpar þeim að skilja hvernig líkaminn virkar og hvers hann þarfnast til að ná bata.
Ef óskað er eftir einstaklingsviðtali eða skoðun hjá sjúkraþjálfurum Stoðkerfisskólans samhliða námi í Stoðkerfisskólanum, er greitt fyrir það skv. taxta Sjúkratrygginga Íslands fyrir tíma í sjúkraþjálfun. Mælt er með að bæta því við ef um flókin vandamál er að ræða, sérstaklega ef viðkomandi er ekki í einstaklings sjúkraþjálfun með Stoðkerfisskólanum.
Stoðkerfisskólinn er samtals 24 tímar og stendur yfir í 8 vikur.
Share on facebook
Facebook
Share on twitter
Twitter
Share on print
Print