HAM - Hugræn atferlismeðferð
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem eiga við ofþyngd að stríða, upplifa vanlíðan vegna þess og hafa áhuga á að skoða og vinna í sjálfum sér.
Nýtt námskeið hefst laugardaginn 8. maí kl. 9.30-11.30
Næstu skipti eru eftirfarandi laugardagar:
15. maí kl. 10-12
22. maí kl. 10-12
29. maí kl. 10-12
5. júní kl. 10-12
Síðustu tvö skiptin verða í júlí:
24. júlí 10-12
31. júlí 10-12
Gert er ráð fyrir 8-12 þátttakendum í hverjum hópi.
Meðferðin er byggð á hugrænni atferlismeðferð. Einnig er stuðst við meðferðarnálganirnar: Þjálfun svengdarvitundar (Appetite Awareness training), Árvekni (Mindfulness) og Þjálfun Samkenndar (Compassion-Mind Training). Meðferðin byggir á fræðslufyrirlestrum sem og verklegum æfingum í tíma og heima.
Meðferðaraðilar eru Helma Rut Einarsdóttir sálfræðingur og Valgerður Margrét Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur
Námskeiðsgjald er kr 31.500 (þ.e. kr 2.250 á klst. Athugið möguleika á niðurgreiðslu frá stéttarfélagi eða vinnuveitenda)
Skráning og nánari upplýsingar í afgreiðslu Heilsuborgar, s: 560-1010
Einnig í s: 691-3949 (Valgerður) og 695-5288 (Helma)
