Meðferð næringafræðings
Meðferð hjá næringarfræðingi.
Ef þú ert að glíma við sérstök vandamál sem tengjast næringu, svo sem offitu, vannæringu, sykursýki, ofnæmi eða meltingarvandamál, býðst þér meðferð hjá næringarfræðingi. Næringarfræðingur býður upp á ráðgjöf og meðferð við næringarvanda af ýmsum toga og er meðferð ávallt sniðin að þörfum og vanda hvers og eins. Næringarfræðingur byggir alla ráðgjöf og meðferð á gagnreyndri þekkingu þar sem mataræði er metið og fundið út hvar æskilegt er að gera breytingar. Áhersla er lögð á að fólk njóti fjölbreyttrar fæðu í hæfilegu magni og að sett séu skýr og raunhæf markmið sem miða að heilbrigðum lífsstíl.
Verð fyrir 60 mín viðtal er kr. 12.000.
Óla Kallý Magnúsdóttir og Aníta Sif Elídóttir næringarfræðingar sinna ráðgjöfinni.
Tímapöntunum eða afbókunum skal beina til móttöku Heilsuborgar í síma 560-1010
