Ráðgjöf um offitu og þyngdarstjórnun
Læknisráðgjöf um offitu og þyngdarstjórnun
Markmið þjónustunnar er að aðstoða einstaklinga við að finna hvaða leið hentar best til að vinna með þyngdarvanda. Margar ólíkar orsakir geta legið þar að baki og mismunandi meðferðarleiðir henta mismunandi einstaklingum. Í kjölfar greiningar er lögð upp áætlun um viðeigandi meðferð og veittur er stuðningur til að framfylgja þeirri áætlun sem miðar að bættri heilsu og auknum lífsgæðum. Þessa þjónustu veitir Erla Gerður Sveinsdóttir heimilislæknir sem hefur langa reynslu af greiningu og meðferð offitu og aðstoð við lífsstílsbreytingar.
Móttakan er öllum opin. Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði þeirra sem eru með líkamsþyngdarstuðul (BMI) yfir 40 eða yfir 35 og hafa jafnframt greinst með hjartasjúkdóm, blóðfituröskun, háþrýsting, sykursýki 2 eða kæfisvefn.
Fullt gjald Almennt gjald Aldraðir I (67-69 ára) Aldraðir II (eldri en 70 ára) og Börn
Verðskrá frá Án niðurgreiðslu SÍ* sjá að ofan með niðurgreiðslu SÍ með niðurgreiðslu SÍ öryrkjar m niðurgreiðslu SÍ undir 18 ára
1. jan 2017
Án afsl. Með afsl Án afsl. Með afsl Án afsl. Með afsl Án afsl. Með afsl
Forviðtal 6532 3030 4851 2684 2857 1010 890 726
Greiningar
viðtal
60 mín 14312 5623 7443 5276 5450 1590 1590 1590
Með undirbúning 15560
Eftirfylgd 7780
*SÍ Sjúkratryggingar Íslands.
Þjónustan er þríþætt; ráðgjöf, greining og stuðningur
Fyrsta skrefið er að panta tíma í ráðgjafarviðtal í síma 560 1010 eða senda póst á Nánari upplýsingar veitir Erla í gegnum
Ráðgjöf. Í fyrsta viðtali er veitt ráðgjöf á grunni stuttrar könnunar á heilsufarssögu og þinna markmiða. Lagt er upp næsta skref í átt að betri heilsu. Ef næsta skref er að koma í greiningarviðtal verða gerðar mælingar á líkamssamsetningu, gripstyrk, blóðþrýstingi og mittismáli. Einnig verða afhentir spurningalistar um ýmsa þætti andlegrar og líkamlegrar heilsu og lífsgæða. Gerð er beiðni fyrir blóðrannsókn ef nýlegar niðurstöður af blóðrannsóknum eru ekki til staðar.
Greiningarviðtal. Heilsufarssaga, holdarfarsþróun og líðan er rædd og heilsufar og áhættuþættir metnir. Með hliðsjón af niðurstöðum mælinga, spurningalista, viðtals og skoðunar er lögð upp áætlun um hvaða leið hentar best til að vinna með ofþyngd eða offitu og sjúkdóma sem henni tengjast.
Stuðningsviðtöl bjóðast síðan til að fylgja eftir og styðja við þá áætlun sem sett var upp í greiningarviðtali. Slík viðtöl geta einnig verið til mats og stuðnings vegna fyrirhugaðrar magahjáveituaðgerðar á Landspítala. Sjúkratryggingar taka þátt í greiðslu þessara viðtala en fjöldi þeirra er takmarkaður.
