Heilsurækt

Ráðgjöf um offitu og þyngdarstjórnun

LineBreak

Læknisráðgjöf um offitu og þyngdarstjórnun   
Markmið þjónustunnar er að aðstoða einstaklinga við að finna hvaða leið hentar best til að vinna með þyngdarvanda. Margar ólíkar orsakir geta legið þar að baki og mismunandi meðferðarleiðir henta mismunandi einstaklingum.  Í kjölfar greiningar er lögð upp áætlun um viðeigandi meðferð og veittur er stuðningur til að framfylgja þeirri áætlun sem miðar að bættri heilsu og auknum lífsgæðum. Þessa þjónustu veitir  Erla Gerður Sveinsdóttir heimilislæknir  sem hefur langa reynslu af greiningu og meðferð offitu og aðstoð við lífsstílsbreytingar.
Móttakan er öllum opin. Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði þeirra sem eru með líkamsþyngdarstuðul (BMI) yfir 40 eða yfir 35 og hafa jafnframt greinst með  hjartasjúkdóm, blóðfituröskun, háþrýsting, sykursýki 2 eða kæfisvefn.
      
Fullt gjald  Almennt gjald Aldraðir I (67-69 ára)  Aldraðir II (eldri en 70 ára) og Börn 
Verðskrá frá Án niðurgreiðslu SÍ* sjá að ofan með niðurgreiðslu SÍ með niðurgreiðslu SÍ öryrkjar m niðurgreiðslu SÍ undir 18 ára
1. jan 2017        
               
Án afsl.  Með afsl  Án afsl.  Með afsl  Án afsl.  Með afsl  Án afsl.  Með afsl
Forviðtal     6532     3030       4851       2684        2857      1010         890        726
            
Greiningar

viðtal

60 mín      14312    5623        7443        5276       5450       1590        1590      1590
 

Með undirbúning 15560          

Eftirfylgd      7780

*SÍ Sjúkratryggingar Íslands.       

 

Þjónustan er þríþætt; ráðgjöf, greining og stuðningur
 

Fyrsta skrefið er að panta tíma í ráðgjafarviðtal í síma 560 1010 eða senda póst á    Nánari upplýsingar veitir Erla í gegnum
 

Ráðgjöf. Í fyrsta viðtali  er veitt ráðgjöf á grunni stuttrar könnunar á heilsufarssögu og þinna markmiða. Lagt er upp næsta skref í átt að betri heilsu. Ef næsta skref er að koma í greiningarviðtal verða gerðar mælingar á líkamssamsetningu, gripstyrk, blóðþrýstingi og mittismáli. Einnig verða afhentir spurningalistar um ýmsa þætti andlegrar og líkamlegrar heilsu og lífsgæða. Gerð er beiðni fyrir blóðrannsókn ef nýlegar niðurstöður af blóðrannsóknum eru ekki til staðar. 
 

Greiningarviðtal. Heilsufarssaga, holdarfarsþróun og líðan er rædd og heilsufar og áhættuþættir metnir. Með hliðsjón af niðurstöðum mælinga, spurningalista, viðtals og skoðunar er lögð upp áætlun um hvaða leið hentar best til að vinna með ofþyngd eða offitu og sjúkdóma sem henni tengjast.
 

Stuðningsviðtöl  bjóðast síðan til að fylgja eftir og styðja við þá áætlun sem sett var upp í greiningarviðtali. Slík viðtöl geta einnig verið til mats og stuðnings vegna fyrirhugaðrar magahjáveituaðgerðar á Landspítala. Sjúkratryggingar taka þátt í greiðslu þessara viðtala en fjöldi þeirra er takmarkaður.

LineBreak