60 ára og eldri
Vilt þú bæta heilsuna og ná betra jafnvægi?
Auka styrk og hreyfigetu, sem og úthald við dagleg störf?
Ef þú ert 60 ára eða eldri og vilt gera einfaldar æfingar og fá aðhald og stuðning þá endilega vert þú með!
- Mánudagar og miðvikudagar kl. 11:00 (tvö erfiðleikastig í boði kl. 11:00)
- Þjálfarar: Sigurlín Jóna og Elva Björk, íþróttafræðingar
- Verð kr. 9.900 fyrir 4 vikur (2 sinnum í viku).
- Áskriftarverð er kr. 8.500 á mán., þriggja mánaða binditími. Áskrift er ekki hægt að bóka á netinu
Næsta námskeið hefst 11.ágúst
![]()
Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal fylgir námskeiðinu
Opinn tími á föstudögum kl. 11:00 fyrir Heilsuborgara, 60 ára og eldri.
Sjá einnig Zumba Gold fyrir 60 ára og eldri
60+ er námskeið fyrir 60 ára og eldri sem vilja markvissa hreyfingu í góðum félagsskap.
Rannsóknir hafa sýnt að styrktarþjálfun er sérstaklega góð leið til að viðhalda eða bæta vöðvastyrk og beinþéttni.
Námskeiðið 60+ hentar vel þeim sem vilja auka vöðvastyrk, hægja á beinþynningu, ná betra jafnvægi, auka úthald við dagleg störf og fá markvissa þjálfun og ráðgjöf. Námskeiðið er 4 vikna lokað námskeið með léttri leikfimi, tækjaþjálfun, slökun og vellíðan. Frjáls aðgangur fylgir í heilsuræktina á meðan á námskeiðinu stendur.
