Pilates
Markmið Pilates er að lengja, styrkja og stæla líkamann með kerfisbundnum æfingum. Hver æfing virkjar kviðvöðvana og aðferðin leggur áherslu á að styrkja miðjuna - kviðinn, mjóhrygginn og rassinn. Skemmtilegar og hvetjandi æfingar til að styrkja líkamann.
- Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30-18:30
- Þjálfari: Margrét Stefánsdóttir sjúkraþjálfari og löggildur Stott pílates kennari
- Verð kr. 28.900 (þ.e. 14.450 pr. mán.) 8 vikna námskeið
Næsta námskeið hefst í haust og verður auglýst þegar nær dregur
Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal fylgir námskeiðinu
STOTT PILATES æfingakerfið er nútímaleg útfærsla á upprunalegu pilates æfingum Joseph Pilates, sem hann þróaði fyrir meira en 80 árum.
Í STOTT PILATES hefur kerfið verið aðlagað meðal annars af sjúkraþjálfurum að faglegri þekkingu innan þjáflunarfræða og lífeðlisfræði.
Æfingarnar eru framkvæmdar rólega og miða að því að bæta líðan, styrk, jafnvægi og líkamsstöðu með því að leggja áherslu á djúpa vöðvakerfið. Þær veita góðan grunn fyrir annars konar þjálfun, s.s hlaup, golf, sund, skíði og henta vel með annarri hreyfingu. Auðvelt er að einstaklingsmiða æfingarnar þannig að þær henti byrjendum jafnt sem lengra komnum auk þeirra sem glíma við ýmis stoðkerfisvandamál.
