HAM - verkir
Námskeiðið HAM – verkir samanstendur af hópmeðferð sem byggir á hugrænni atferlismeðferð og er ætlað fólki sem glímir við þráláta verki. Vandi þátttakendanna getur ýmist verið nýtilkominn eða langvinnur og getur átt sér skýrar orsakir eða verið vandi sem viðkomandi hefur ekki fengið viðhlítandi læknisfræðilegar skýringar á. Eina skilyrðið fyrir þátttöku er að fólk glími við verki sem því finnst það ekki hafa stjórn á og að andleg líðan sé farin að bera þess merki.
Í upphafi námskeiðsins verður lögð áhersla á að fjalla um samspil andlegrar og líkamlegrar heilsu (sbr. hugsunarháttur getur magnað upp verkjaupplifun og verkir geta aukið líkur á þróun geðraskana). Kenndar verða aðferðir til að takast á við verki með hugrænum og atferlistengdum hætti. Markmiðið er að þátttakendur læri aðferðir til að breyta líðan sinni með því að endurmeta hugsanir sínar og stýra hegðun sinni. Í síðasta tíma námskeiðsins verður núvitundarþjálfun kynnt til sögunnar sem aðferð til að verða var líðan sína, andlega og líkamlega, og velja í framhaldi viðbrögð sem eru viðkomandi einstaklingi mest í hag.
Námskeiðið fer fram í fimm skipti, einn og hálfan tíma í senn. Meðferðin byggir á fræðslu, verkefnavinnu, umræðum í hópum, heimaverkefnum og hugleiðsluæfingum. Vikuna áður en námskeiðið hefst eru þátttakendur boðaðir í undirbúningsviðtal hjá sálfræðingi þar sem bakgrunnsupplýsingum um verkjasögu þátttakandans er aflað, andleg líðan er metin og þátttakendur eru upplýstir um innihald námskeiðsins. Þetta er til þess gert að auka líkur á því að þátttakendur geti strax frá upphafi tileinkað sér aðferðirnar sem námskeiðið byggir á. Einnig að sálfræðingarnir sem stýra námskeiðinu þekki líðan þeir sem sitja námskeiðið og geti tekið mið af því að þátttakendurnir eru misjafnlega staddir í vinnu sinni. Þeir munu kappkosta að aðlaga efnið að þátttakendum svo þeir geti tileinkað sér ofangreindar aðferðir til að bæta lífsgæði sín.
Fagaðili: Elva Brá Aðalsteinsdóttir og Sigrún Ása Þórðardóttir sálfræðingar.
Tímasetning: Námskeiðið er fimm skipti. Hver tími er 1 ½ klukkustund. Námskeið hefst á haustönn 2015 nánari tímasetning síðar
Verð: 29.800 kr. Innifalið í því verði er upphafsviðtal hjá sálfræðingi.
