Heilsuefling á vinnustað - allra ávinningur
Fólk á öllum aldri eyðir miklum hluta dagsins í vinnunni. Atvinna fólks er því orðin stór partur í lífi margra. Af þeim sökum er ekki síður mikilvægt að fólki líði vel í vinnunni og geti treyst því að það umhverfi sem það vinnur í sé öruggt og ógni ekki heilsu þeirra. Heilsuvernd á vinnustað er lögbundin. Í heilsuvernd er meðal annars lögð áhersla á aðgerðir sem fyrirbyggja eða draga úr hættu á atvinnutengdum sjúkdómum svo og slysum á vinnustað. Einnig er lögð áhersla á aðgerðir sem stuðla að andlegri og líkamlegri vellíðan starfsmanna.
Heilsuefling á vinnustað er ekki lagalega skylda en margir atvinnurekendur telja þó mikilvægt að beita ýmsum aðgerðum til að efla heilsu starfsfólks (Hólmfríður K. Gunnarsdóttir, 2007). Vinnustaðurinn er talinn kjörinn vettvangur til heilsueflingar. Þar er hægt að ná til stórs hóps af fólki sem annars væri ekki endilega hægt að ná sambandi við (Goetzel, Roemer, Liss-Levinson og Samoly, 2008). Þar vinna einstaklingar sem oft búa í nágrenni hver við annan, deila svipaðri menningu og áformum. Samskipti og upplýsingaflæði gengur því oftast snurðulaust fyrir sig (Goetzel og Ozminkowski, 2008). Einnig er auðveldlega hægt að kynna til leiks nýjar stefnur og reglur innan fyrirtækisins sem hvetja til nýrrar og bættrar hegðunar (Goetzel o.fl., 2008).
Til þess að heilsueflingin skili lífsstílsbreytingu hjá starfsfólki þarf vinnustaðurinn að setja sér ákveðin markmið í heilsueflingarmálum (ENHP, 2007; Heilbrigðisráðuneytið, 2008; WHO, e.d.). Markmiðin þurfa að ná til allra þeirra atriða sem stuðla að bættu heilsufari starfsfólksins og einnig þurfa þau að draga úr áhrifum þeirra þátta sem ógna heilsufari þess (WHO-Europe, 2006; Beaglehole og Bonita, 2004). Til að ná þessum markmiðum þarf að móta ákveðna heilsustefnu.
Það eru nokkrir megin þættir sem slík stefna þarf að fela í sér til að hún sé vænleg til að skila árangri. Í fyrsta lagi er nauðsynlegt að kanna núverandi heilsu ástand og heilsuhegðun starfsmanna með þarfagreiningu innan fyrirtækisins. Gera þarf viðeigandi úrbætur á starfsumhverfi og vinnuaðstæðum. Það þarf að sníða stefnuna þannig að möguleiki sé á þátttöku allra í fyrirtækinu. Heilsustefna þarf að vera samofin daglegum rekstri og vera hluti af daglegu lífi starfsmanna, í öllum þrepum fyrirtækisins (European Agency for Safety and Health at Work [EASHW], e.d.). Stefnan þarf að ýta undir áhuga, þroska og ábyrgð starfsmanna á eigin heilsu og hvetja þá til virkrar þátttöku í heilsueflandi verkefnum (ENHP, 2007). Best er að markmið stefnunnar séu að ná fram langvarandi breytingum eða framförum í heilsutengdri hegðun og bættu heilsufari og sé jafnframt fjárhagslegur ávinningur fyrir fyrirtækið (Chapman, 2002). Árangursrík stefna er óháð stærð og efnahag fyrirtækisins (EASHW, e.d.).
Helga Sigmundsdóttir,
Lýðheilsufræðingur/Einkaþjálfari
Þjálfari hjá Heilsuborg
