---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Lífsgleði og góð heilsa

LineBreak

Hópþjálfun er ein nýjungin í Heilsuborg, Faxafeni 14, nú í upphafi árs. Tíminn líður hratt í góðum félagsskap og uppskeran verður aukið þol, úthald og gleði. Anna Borg er einka- og sjúkraþjálfari í Heilsuborg.

 

Samkvæmt Önnu Borg þá sækir fólk meira í hópþjálfun nú en áður. „Þess vegna leggjum við aukna áherslu á hana. Hún hentar þeim vel sem vilja gera reglubundna hreyfingu að lífsstíl,“ segir Anna Borg og tekur fram að um fjögurra til átta manna hópa sé að ræða. „Það skapast viss samheldni innan hópsins og þar með ákveðið aðhald því félagsskapurinn verður hluti af því að fara í ræktina,“ segir hún og bætir við: „Allt verður líka mun skemmtilegra í hópi og það er mjög mikilvægt atriði í þjálfuninni að hún sé skemmtileg, upp á að hún verði varanleg.“

 

Anna segir fólk fá hjálp í Heilsuborg við að setja sér raunhæf, heilsutengd markmið og aðstoð og hvatningu til að ná þeim. Þau markmið geti vissulega verið ólík. „Þó svo að margir vilji fylgjast með fituprósentunni og vigtinni hefur hreyfingin áhrif á svo marga aðra þætti, þar má nefna aukið þol og úthald, betri svefn og minni verki. Við leggjum nefnilega ríka áherslu á að markmiðin séu sett til að efla heilsuna. Bætt útlit er svo bara bónus!“ segir Anna, sem telur góðan árangur nást í hópþjálfuninni til lengri tíma litið.

 

„Hér notum við helst ekki orðið „átak“. Við viljum miklu frekar innleiða þann hugsunarhátt að um góðar venjur til framtíðar sé að ræða. Átak merkir alltaf einhvern afmarkaðan tíma og það segir sig sjálft að honum lýkur. Við viljum frekar sjá hægari árangur sem verður varanlegur. Við brýnum fyrir fólki að nota skynsemina og fara ekki út í skyndilausnir, kjósum að forðast boð og bönn en innleiða góðar venjur og þar með ýta út ósiðum.“

 

Íslendingar eru meðal þyngstu þjóða Evrópu samkvæmt nýlegri könnun og Anna segir marga þurfa að létta sig af heilsufars ástæðum. „Það er árangur fyrir marga að stoppa þyngdaraukningu og oft fyrsta skrefið í lífsstílsbreytingum,“ segir hún og er bjartsýn á að þjóðin taki sig á. „Ég tel að fólk sé þegar farið að leggja meiri áherslu á heilsuna, etja hana ofar á forgangslistann,“ segir hún. „Enda er það svo að ef við höfum ekki heilsuna er erfitt að njóta annars“.

 

Úr Fréttablaðinu 30. Desember 2010

LineBreak