---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Hvað er streita?

LineBreak

Flestir ef ekki allir hafa upplifað það að vera streittir og líklega væru flestir sammála því að það er ekki sérstaklega þægileg tilfinning, jafnvel mjög óþægileg. En hvað er streita? Á fyrri hluta 20. aldar var talið að öll streita væri slæm. Það var ekki fyrr en á síðari hluta 20. aldar að vísindamenn fóru að átta sig á því að streituviðbragðið er okkur nauðsynlegt, jafnvel lífsnauðsynlegt.  Þegar einstaklingurinn upplifir streituálag af einhverjum toga fer líkaminn í viðbragðsgír sökum flæðis streituhormóna á borð við cortisón og noradrenalín sem gera honum kleift að takast á við álagið.  

Það að takast á við krefjandi verkefni, hvort sem er í vinnu eða einkalífi er dæmi um streituálag. Við þurfum á streituviðbragðinu og þar af leiðandi streituhormónunum að halda til að takast á við verkefnið og klára það.  Streituhormónarnir gera okkur kleift að einbeita okkur og takast á við verkefnið þannig að útkoman verði æskilegust. Þegar verkefninu lýkur gengur streituviðbragðið niður og jafnvægi kemst á streitukerfið að nýju. Streita er því í raun lífeðlisfræðilegt viðbragð sem er tilkomið vegna streituvalda/álags og er okkur nauðsynlegt.

Streituvaldar geta verið mjög margvíslegir og það er misjafnt hvaða streituvaldar kalla fram streituviðbrögð hjá einstaklingum.  Hvers kyns breytingar, áföll, áhyggjur, krefjandi verkefni og lélegt sjálfsmat, geta verið dæmi um streituvalda. Þegar við erum undir álagi í langan tíma án þess að líkami og/eða hugur fái reglulega nægjanlega hvíld kemur að því að streituviðbragðið hættir að vera gagnlegt og fer að hamla okkur í lífinu og þá fer að bera á ýmsum streitueinkennum og í alvarlegustu tilfellunum kulnun (burnout).  Algeng streitueinkenni geta verið spennuhöfuðverkur, of hár blóðþrýstingur, þreyta/síþreyta,verkir,svefnvandamál, kvíði, þunglyndi, ofát, lystarleysi, meltingartruflanir, reiði, óhófleg áfengisneysla.  

Neikvæð streita verður til þegar álag er mikið og lítil eða engin endurhleðsla og hvíld. Neikvæða streita er skaðleg heilsunni og því er æskilegt að reyna að fyrirbyggja neikvæða streitu.  Einstaklingar sem eru farnir að finna fyrir verulegum einkennum neikvæðrar streitu þurf a að sjálfsögðu að fá viðeigandi meðhöndlun.  

Fyrsta skrefið er að átta sig á því hvað það er sem er að valda einkennunum. Það er því nauðsynlegt að læra að meta sjálfan sig með tilliti til hvoru tveggja. Það er ekki bara nóg að meðhöndla einkennin þ.e.a.s blóðþrýstingin, eða höfuðverkin og láta þar við sitja. Ef orsakavaldurinn er ekki skoðaður þá munu einkennin að öllum líkindum fljótlega gera vart við sig að nýju. Það getur verið gagnlegt að halda dagbók í um tvær vikur, þar sem streituvaldar og streitueinkenni eru skráð niður með það að markmiði að öðlast betri innsýn í eigin líðan. Með því að halda skrá yfir streituvalda og einkenni með þessum hætti, þá koma flestir fljótt auga á það sem er að valda streitu, en jafnframt átta flestir sig á því hversu miklu máli hugarfarið skiptir, því oft eru það ekki atburðirnir í sjálfu sér sem valda okkur mestu einkennunum heldur afstaða okkar til hlutanna.

Höfundur: Sigrún Ása Þórðardóttir
Sálfræðingur / Psychologist

LineBreak

Ummæli Ragga

Hver dagur var eins og þátttaka í maraþonhlaupi, svo mikil voru átökin við daglegar hreyfingar ...