Heilsulausn 1
Fyrir hverja? Hentar vel þeim sem vilja fylgjast með áhættuþáttum og fyrirbyggja heilsubrest. Hentar einnig þeim sem eru að koma sér af stað í hreyfingu, þeim sem glíma við nokkur aukakíló eða eru með væga blóðþrýstingshækkun.
Mældur er blóðþrýstingur, púls, mittisummál, fituhlutfall, hæð og þyngd. Líkamsþyngdarstuðull er reiknaður út. Þá er blóðfita og blóðsykur mældur. Gert er þrekpróf (göngupróf) og þrektala þín er fundin. Upplýsingar eru skráðar í heilsufarsbók, niðurstöður útskýrðar og ráðgjöf veitt.
Námskeiðið "Heilbrigður lífsstíll", fyrsti dagur námskeiðsins.
Markmið eru skilgreind og sett upp þjálfunaráætlun í 12 vikur, þjálfun í hóptímum eða lyklakerfi, aðhald og stuðningur, frjáls aðgangur að líkamsræktinni. Heilsufarsmat endurtekið í lok þjálfunartímabils.
Innifalið:
- 12 vikna námskeið
- Mælingar í upphafi námskeiðs: Heilsumat 1
- Mælingar í lok námskeiðs: heilsumat 1
- Fræðsla: Námskeiðið Heilbrigður lífsstíll, dagur 1
- Þjálfun: Hópþjálfun þrisvar í viku,– mán,mið og fös kl 9 og 17:30
- Aðhald og stuðningur, vikuleg vigtun
Verð: kr 64.000
