---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------

Heim

Heilsurækt

Heilbrigðisþjónusta

Heilsulausnir

 
Heilsurækt

Heilsulausn 3

LineBreak

Fyrir hverja? Hentar þeim sem glíma við offitu, hjartasjúkdóma eða sykursýki eða áhættuþætti þessara sjúkdóma. Hentar einnig þeim sem vilja ítarlegt mat á heilsufari og áhættuþáttum.

Mæling í líksmsgreiningartæki, mæld þyngd, fituhlutfall, vöðvamagn og vatnsmagn. Gurnnefnaskipti reiknuð út og orkuþörf þín metin. Mældur blóðþrýstingur, púls og mittisummál. Líkamsþyngdrstuðull reiknaður út. Gert er þrekpróf (göngupróf) og þrektala þín er fundin.

Sjúkraþjálfari metur líkamsstöðu og líkamsbeitingu ásamt því að meiðslasaga er yfirfarin. Ráðleggingar um þjálfun fylgja síðan í kjölfar slíks mats.

Mat læknis er byggt á ofangreindum upplýsingum ásamt ítarlegri upplýsingum um heilsufar sem fram koma í spuningalistum sem þú fyllir út og farið verður yfir í viðtali við lækni. Sett eru fram markmið og gerð áætlun um þjálfun og meðferð í samvinnu við þig og fagaðila sem koma að meðferðinni.

Markmið eru skilgreind og sett upp þjálfunaráætlun í 12 vikur. Þjálfun í hóptímum eða lyklakerfi, þjálfun í tækjasal samkvæmt ráðleggingum sjúkraþjálfara, frjáls aðgangur að líkamsræktinni. Fræðslunámskeið „Heilbrigður lífstíll, dagar 1,2 og 3“. Eftirlit hjúkrunarfræðings og næringarfræðings, aðhald og stuðningur. Heilsufarsmat endurtekið í lok þjálfunartímabils.

Innifalið:

  • 12 vikna námskeið
  • Mikið aðhald og stuðningur
  • Heilsufarsmat og ráðgjöf læknis í upphafi og lok þjálfunartímabils
  • Ráðgjöf og mat sjúkraþjálfara
  • Heilbrigður lífstíll fræðslunámskeið. Kennt þrjá laugardaga
  • Hópþjálfun 3 x í viku. Þjálfun í hóptímum og lyklakerfi
  • Vikulegir stuðningsfundir hjá næringarfræðingi, hjúkrunarfræðingum eða lækni
  • Vikuleg vigtun.
  • Frjáls aðgangur að líkamsræktinni


Kennsla fer fram á mán, mið og föst kl. 9:00 eða 16:30
Kennarar: Haddý og Anna Borg

Verð: kr. 133.000 eða 44.340 á mán í 3 mán. Ef árskort bætist við er greitt staðfestingargjald 10.800 og síðan 10.800 á mán í 15 mán ( tvær greiðslur fyrsta mánuðinn).

LineBreak