Hættu að reykja
Reykleysisnámskeið
„Já, en ég fitna ef ég hætti að reykja“.....
er engin afsökun lengur
Fræðsla, stuðningur, ráðgjöf og hreyfing
Næsta námskeið áætlað í byrjun mars, skráning stendur yfir.
- 4 vikna námskeið
- Vikuleg hópmeðferð læknis
- Fræðsla um næringu, hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl
- Hópþjálfun þrisvar í viku
- Frjáls aðgangur að heilsuræktinni í mánuð
- Aðhald og stuðningur
Leiðbeinendur: Stefán Þorvaldsson læknir, Erla Gerður Sveinsdóttir læknir, Ingibjörg Gunnarsdóttir næringarfræðingur, Anna Borg og Guðlaugur Birgisson sjúkraþjálfarar ásamt þjálfurum Heilsuborgar.
Þeim sem vilja nota lyfseðilsskyld lyf til að aðstoða sig við reykleysið er bent á að hitta sinn lækni tveim vikum áður en námskeið byrjar. Einnig er hægt að hitta lækna Heilsuborgar til að fá slíka ráðgjöf. Námskeiðið nýtist betur ef lyfjameðferð er hafin áður en námskeiðið hefst.
