Snædís Eva Sigurðardóttir
Snædís Eva Sigurðardóttir starfar sem sálfræðingur í Heilsuborg.
Snædís veitir ráðgjöf og meðferð fyrir einstaklinga og aðstandendur þeirra, sem þjást af kvíða, þunglyndi og streitutengdum vandamálum. Hún veitir einnig þeim meðferð sem kljást við erfiðleika í tengslum við áföll, verki og sjúkdóma. Snædís hefur langa reynslu af að vinna með fólki sem hefur þjáðst af streitu og haldið fjölda námskeiða um afleiðingar streitu og streitustjórnun. Hún beitir aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og núvitund (Mindfulness).
Snædís lauk B.A. prófi í sálfræði við Háskóla Íslands árið 2003. Árið 2005 lauk hún námi til kennsluréttinda (M.Ped) og svo Cand. Psych. gráðu frá Háskóla Íslands árið 2008. Frá árinu 2009 hefur Snædís verið starfandi sálfræðingur hjá fyrirtækjaheilsugæslu í Lundi í Svíþjóð þar sem hún veitti starfsfólki sálfræðiaðstoð með vinnutengd vandamál. Árið 2012 fékk Snædís vottun sem sálfræðilegur markþjálfi (Certified Psychological Coach). Árið 2015 hóf hún þjálfun til leiðbeinanda í núvitund í Svíþjóð. Síðasta árið hefur hún verið við nám í hugrænni atferlismeðferð við flóknum vandamálum við University of Sussex (Post Graduate Diploma in CBT for complex difficulties).
Tímapantanir sendist á netfangið eða í síma 5601010
