Elva Brá Aðalsteinsdóttir Sálfræðingur
Elva Brá Aðalsteinsdóttir starfar sem sálfræðingur í Heilsuborg.
Elva veitir einstaklingum og fjölskyldum þeirra meðferð vegna margskonar vanda á borð við kvíða, þunglyndi og streitu. Hún veitir meðal annars meðferð vegna vanlíðan sem rekja má til áfalla og afleiðinga slysa og sjúkdóma. Elva vinnur með hugræna atferlismeðferð (HAM) og núvitund (mindfulness) og miðast val á aðferðum við þarfir hvers skjólstæðings.
Elva lauk B.A. gráðu í sálfræði frá HÍ árið 2002 og MSc gráðu í mannauðsstjórnun og vinnumarkaðsfræðum frá The London School of Economics (LSE) árið 2003. Hún lauk Cand. Psych. prófi í sálfræði frá HÍ árið 2013. Elva starfaði á Reykjalundi í starfsnámi sínu frá 2011-2013 á verkja-, gigtar- og starfsendurhæfingarsviði. Hún er meðlimur í Sálfræðingafélagi Íslands og Félagi sjálfstætt starfandi sálfræðinga.
Tímapantanir sendist á netfangið:
Símanúmer: 560 1010/ 694 4565
