Sigrún Ása Þórðardóttir sálfræðingur og fagstjóri sálfræðiþjónustu Heilsuborgar
Sigrún Ása Þórðardóttir sálfræðingur starfar í Heilsuborg.
Sigrún veitir ráðgjöf og meðferð fyrir einstaklinga og fjölskyldur vegna margvíslegra erfiðleika, eins og Streitu, kvíða, þunglyndis og áfalla. Sigrún Ása vinnur einnig með andlega vanlíðan sem rekja má til langvarandi verkjavandamála og afleiðinga slysa og sjúkdóma. Sigrún Ása hefur haldið fjölda erinda um streitu og streitutengd vandamál, samskipti, uppbyggingu sjálfstrausts og fleira. Hún vinnur að mestu leyti með Hugræna atferlismeðferð (HAM) og núvitund (mindfulness). Auk þess að sinna einstaklingsmeðferð heldur Sigrún reglulega námskeið í streitustjórnun í Heilsuborg og er leiðbeinandi á námskeiðinu Hugarlausnir í Heilsuborg. Hún sinnir einnig hópmeðferð fyrir einstaklinga með langvinna verki.
Sigrún Ása lauk BS Prófi í sálfræði frá HÍ árið 2002 og prófi í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Árósum árið 2005. Að námi loknu starfaði hún sem sálfræðingur við miðstöð fyrir unglinga (Ungdomscentret) í Árósum. Frá 2010 til 2014 starfaði Sigrún sem sálfræðingur við heilsueflingarteymi HNLFÍ og var verkefnastjóri streitumeðferðar við HNLFÍ. Sigrún hefur frá árinu 2011 starfað sem sálfræðingur í Heilsuborg. Sigrún býður upp á einstaklingsviðtöl alla virka daga í Heilsuborg auk þess að sinna annarri sálfræðiþjónustu í Heilsuborg.
Hún er meðlimur í Sálfræðingafélagi Íslands, Félagi sjálfstætt starfandi sálfræðinga og dáleiðslufélagi Íslands.
Tímapantanir sendist á netfangið eða í síma 5601010/6615272
