Helma Rut Einarsdóttir Sálfræðingur
Helma Rut Einarsdóttir starfar sem sálfræðingur í Heilsuborg.
Helma Rut veitir ráðgjöf og meðferð við ýmiss konar vanda. Hún hefur sérhæft sig í að aðstoða fólk við að öðlast heilbrigðara samband við mat og líkama sinn sem og sjálfmyndar- og áfallavinnu, þunglyndi og kvíða. Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra um hvernig sálfræðinálgun getur hjálpað til við lífsstílsbreytingu og hefur sinnt fræðslu í heilsulausnum í Heilsuborg frá upphafi. Hún byggir meðferð aðallega á hugrænni atferlismeðferð, núvitund (mindfulness), EMDR (við áfallavinnu) og samkenndarmiðaðri sálfræðinálgun (compassion focused therapy).
Helma lauk B.A. prófi í sálfræði frá H.Í. 1992, M.A. prófi í heilsusálfræði frá Northern Arizona University 2000 og cand. psych. prófi í klínískri sálfræði frá H.Í. 2003. Síðan 2006 hefur hún starfað sem yfirsálfræðingur á offitusviði Reykjalundar. Þar áður starfaði hún sem sálfræðingur á Landspítalanum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og við sálfræðikennslu. Hún lauk sérnámi í hugrænni atferlismeðferð frá H.Í. og Oxford Cognitive Therapy Center 2008. Helma hefur boðið uppá námskeiðið „Heilbrigðari tengsl við líkamann og matarvenjur“ í Heilsuborg síðan 2009. Hún er með stofurekstur í Heilsuborg einn dag í viku.
Hún er meðlimur í Sálfræðingafélagi Íslands, Félagi um hugræna atferlismeðferð, Félagi fagfólks um offitu og Félagi fagfólks um átraskanir.
Tímapantanir sendist á netfangið: eða í síma 695-5288/560-1010
