---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Anna Sigurðardóttir sálfræðingur

LineBreak
buy ortho tri cyclen,buy ventolin,buy albuterol,buy xalatan,buy elocon,buy tretinoin,buy combivent,buy clindamycin,albuterol inhaler

Anna Sigurðardóttir starfar sem sálfræðingur í Heilsuborg

 

Anna vinnur með lágt sjálfsmat, kvíða, þunglyndi, meðvirkni, reiðistjórnun og almenna tilfinningalega vanlíðan. Hún hefur einnig þekkingu og reynslu af því að vinna með alhliða heilsueflingu, markmiðasetningu, framkomu og frammistöðu einstaklinga í keppnisíþróttum og á sviði. Anna  byggir meðferð aðallega á samkenndarsálfræði (Compassion focused therapy), hugrænni atferlismeðferð (HAM) og núvitund (Mindfulness) og miðast val á aðferðum eftir þörfum skjólstæðings.

 

Anna lauk B.S prófi í sálfræði við Háskóla Íslands 2009 og Cand. Psych prófi frá Háskólanum í Árósum 2012. Hún starfaði á Heilsustöðinni á árunum 2012 til 2014 og var einnig með sjálfstyrkingarnámskeiðið “Betra sjálfstraust óháð líkamsþyngd”. Anna starfaði á Reykjalundi í starfsnámi sínu haustið 2011 á geðsviði og á offitu- og næringarsviði. Hún starfaði við rannsóknir og geðgreiningarviðtöl hjá SÁÁ veturinn 2008-2009. Anna hefur einnig starfað víða um Evrópu við almenna heilsueflingu og ráðgjöf síðastliðin 20 ár sem einkaþjálfari, hóptímakennari og fyrirlesari. 

 

Anna er meðlimur í Sálfræðingafélagi Íslands, Félagi sjálfstætt starfandi sálfræðinga, Félagi Fagfólks um Offitu og FHAM.

 

 

Tímapantanir sendist á netfangið: eða í síma 560-1010

LineBreak