---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Elín Fríða Sigurðardóttir

LineBreak
buy ortho tri cyclen,buy ventolin,buy albuterol,buy xalatan,buy elocon,buy tretinoin,buy combivent,buy clindamycin,albuterol inhaler

Elín Fríða Sigurðardóttir
Heilsulausnir 

 


Elín kom fyrst í Heilsuborg í september 2012 þegar hún kom í Heilsumat til Mariönnu, hjúkrunarfræðings. Henni fannst það góð byrjun og fékk hvatningu til að taka heilsuna meira alvarlega en það var erfitt að taka skrefin þó hún hafi vitað hvað væri rétt að gera.


Það var enginn fyrir framan mig í speglinum
„Ég ákvað í október 2012 að skrá mig í Heilsulausnir. Það sem reyndist mér best var að loksins var hlustað á mig og talað við mig en ekki „yfir“ mig. Það eru svo margir sem vilja gefa manni góð ráð en best er að maður stýri ferðinni sjálfur. Það er svo ótrúlegt hvað maður bíður lengi eftir rauða spjaldinu en ég var komin með of hátt kólesteról, of há í sykri og blóðþrýstingi. Svo var ekkert gaman að horfa á kílóatöluna svo það voru mörg rauð flögg í gangi. Mamma hefur verið með sykursýki og ég var ákveðin í að ætla ekki þangað og vildi ekki þurfa að taka lyf. Það var enginn fyrir framan mig í speglinum, þetta var ég sjálf og ég þurfti að gera breytingar!“


Fyrsta skrefið er að mæta alltaf í tímana

„Sigurlín þjálfari kenndi okkur að taka eitt skref í einu. Fyrstu vikurnar fórum við ekkert á vigtina en áherslan var lögð á að tileinka okkur að mæta á æfingu 3x í viku. Fyrir flesta er það heilmikil breyting en áhersla var einnig lögð á að koma reglu á mataræðið og borða á réttum tímum. Það hentaði mér mjög vel að fara rólega af stað.“


Lærði á kollinn í sjálfri mér
„Núna er ég búin að læra meira á sjálfa mig. Ég veit að ég er að plata sjálfa mig ef ég ætla að sleppa æfingu og fara frekar í göngutúr þegar ég kem heim, því ég veit að ég fer ekkert í göngutúrinn! Núna stöðva ég þessar hugsanir og mæti á mínar æfingar. Ég mæti orðið 6 sinnum í viku og er meira að segja orðin háð hreyfingunni.


Erfitt að byrja að borða morgunmat

Ég borðaði aldrei morgunmat og það var heilmikið átak að breyta því. Ég sat oft lengi á bílaplaninu fyrir utan vinnuna með sjeikinn minn og hét mér því að fara ekki inn fyrr en ég væri búin með hann. Núna er þetta allt annað og ég þarf minn morgunmat um leið og ég vakna. Ég borða miklu meira núna en áður en jafnframt miklu hollara. Ég hef notað „My fitness pal“ og skrái þar hvað ég borða, sú leið hentar mér vel til að átta mig á hvaða magn hentar mér.“


Betri andleg og líkamleg heilsa
„Í dag líður mér miklu betur. Ég er sjálf við stjórnina, búin að læra hvernig hentar mér best að borða, regla er á hreyfingunni og svo er andleg líðan miklu betri.  Á þremur mánuðum var blóðþrýstingurinn kominn í rétt horf og nú eru kólesterólið og sykurinn líka komin í samt lag.“

LineBreak