Helga Möller
Ágúst 2012
Morgunþrek og þjálfuní tækjasal
Helga Möller, söngkona og flugfreyja byrjaði í Heilsuborg í upphafi ársins. „Ég hef víða verið í leikfimi í gegnum árin en í janúar hrundi ég líkamlega. Ég var þjökuð af vöðvabólgu og hafði lítið starfsþrek. Ég fór að svipast um eftir lausnum og frétti af því að hjá Heilsuborg hefði fólk í minni stöðu fengið bót meina sinna. Ég var þjökuð af vöðvabólgu og hafði lítið starfsþrek þegar ég byrjaði en nú er lífið allt annað og ég er komin í mun betra form en áður en ég byrjaði. Starfsfólkið veitir mér gott aðhald og mér líður vel“.
