---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Helga Olgeirsdóttir

LineBreak
buy ortho tri cyclen,buy ventolin,buy albuterol,buy xalatan,buy elocon,buy tretinoin,buy combivent,buy clindamycin,albuterol inhaler

22. mars 2010

Námskeið: Morgunhanar (Mitt líf) kl. 6.20

Ég byrjaði í Heilsuborg eftir að hafa fengið kynningu í Smáralind rétt fyrir jólin. Það sem heillaði mig fyrst var lyklaþjálfunin. Mér finnst svo frábært að geta komið þegar mér hentar og samt verið með einkaþjálfarann í vasanum!

Námskeiðið var mjög persónulegt og var eins og við værum allar í einkaþjálfun. Það myndaðist mjög góð stemning í hópnum og leið mér oft eins og ég væri að hitta mínar bestu vinkonur. Anna Sigurðardóttir, þjálfari sendi okkur líka oft ýmsa pósta á netinu, sem var fróðlegt, hvetjandi og skemmtilegt. Það var líka gott að finna allt utanumhaldið frá stöðinni sjálfri og hvað þetta var persónulegt. Judit í afgreiðslunni kom t.d. stundum með próteindrykkina okkar inn í búningsklefa eftir þjálfun sem við gátum drukkið á meðan við höfðum okkur til.

Tímarnir voru mjög fjölbreyttir. Við fórum t.d. í tæki, erobikk, palla og prófuðum líka Easyline og Kinesis tækin. Það var svo gaman að vita ekki fyrirfram hvernig þjálfun yrði í næsta tíma. Anna, þjálfari var líka með ýmsar áskoranir á okkur og við þurftum að setja okkur markmið, sem var hvetjandi og skapaði keppnisanda.

Lokaorð: Verð bara að segja að þetta var frábært námskeið!

LineBreak