Ólafía Jónsdóttir
Viðtal í Fréttablaðinu 9. mars 2012
20 kíló farin á hálfu ári
Ólafía Jónsdóttir ákvað í september á síðasta ári að taka sig í gegn. Hún sá auglýsingu frá Heilsuborg um námskeið sem nefnist Heilsulausnir og er námskeið til að aðstoða fólk við að taka upp nýjan lífsstíl. Hún ákvað að skrá sig og árangurinn er glæsilegur.
„Eftir að ég sá auglýsinguna frá Heilsuborg fór ég á netið og skoðaði betur hvað var í boði. Ég hafði hugsað um það í talsverðan tíma að ég yrði að gera eitthvað í mínum málum, ég var allt of þung,“ segir Ólafía sem starfar hjá Símanum.
„Námskeiðið er ætlað þeim sem glíma við offitu, sykursýki eða aðra sem vilja bæta heilsu sína. Tímarnir eru þrisvar í viku, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Hreyfingin í tímunum er fjölbreytt en einnig er okkur kennt á tæki í sal. Í - tímunum er farið nákvæmlega yfir mataræðið og einnig eru haldnir fyrirlestrar -með næringarfræðingi og sálfræðingum og fleirum“ segir Ólafía. „Námskeiðið er hugsað sem lífsstílsbreyting til frambúðar. Grunnnámskeiðið er tveir mánuðir en síðan er framhald sem nær yfir í eitt ár. Ég ákvað að taka allt árið, enda er það nauðsynlegt til að ná árangri.“
Zumba-tímarnir frábærir
„Þar sem ég var ákveðin í að taka mig í gegn ákvað ég að mæta sex sinnum í viku. Auk þess breytti ég mataræðinu og minnkaði matarskammtana. Ég þarf að losa mig við 40 kíló og er þegar búin að missa 20 þannig að árangurinn er mjög góður. Á þriðjudögum og fimmtudögum fer ég í Zumba. Ég mæli eindregið með þeim tímum því kennarinn er frábær,“ segir Ólafía. „Zumba er einstaklega skemmtilegt og á vel við mig.“
Ólafía segist finna mikinn mun á líðan sinni frá því hún byrjaði í Heilsuborg. „Ég finn bæði mun á andlegri og líkamlegri líðan. Ég hef miklu meira þol, sef betur og vakna betur,“ segir Ólafía sem er 27 ára og er meðvituð um heilsu sína. „Ég reikna með að halda áfram eftir árið þar sem þessi nýi lífsstíll á vel við mig. Þar utan hef ég fengið afar jákvæð viðbrögð frá fólki í kringum mig sem er ánægjulegt.“
Ólafía fer í ræktina eftir vinnu en Heilsuborg er nálægt vinnustað hennar. „Í Heilsuborg er einstaklega heimilislegt andrúmsloft. Það er vel hægt að koma í gömlu íþróttafötunum, enginn spáir í það. Þótt konur séu í meirihluta þá eru tímarnir einnig fyrir karla,“ segir Ólafía Jónsdóttir.
