---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Rúnar Magnússon

LineBreak
buy ortho tri cyclen,buy ventolin,buy albuterol,buy xalatan,buy elocon,buy tretinoin,buy combivent,buy clindamycin,albuterol inhaler

Kílóin fuku með breyttum lífsstíl

Byrjaði í Heilsulausnum 2011

Viðtal í Fréttablaðinu 12. mars 2013

 

Rúnar Magnússon var farinn að finna fyrir heilsubresti af völdum ofþyngdar þegar hann ákvað að breyta lífsstílnum.
Rúnar, sem er 39 ára, var orðinn 138,5 kíló þegar hann tók þá ákvörðun að gera eitthvað róttækt í sínum málum.

Rúnar, sem er 39 ára, var orðinn 138,5 kíló þegar hann tók þá ákvörðun að gera eitthvað róttækt í sínum málum. "Mér var farið að líða virkilega illa með þessa ofþyngd og fann fyrir vandamálum í hnjám og baki og átti erfitt með svefn. Það varð einhver vitundarvakning hjá mér. Ég ákvað að ræða við heimilislækninn minn sem skráði mig á námskeið á Reykjalund, hvort sem ég færi síðan í aðgerð eða ekki. Það var hins vegar langur biðlisti og ég vildi byrja strax að gera eitthvað í mínum málum. Læknirinn benti mér þá á námskeið hjá Heilsuborg," útskýrir hann.

Rúnar skráði sig á námskeið sem heitir Heilsulausnir í janúar 2011. Síðan hefur hann misst 53 kíló og er núna 85 kíló að þyngd. "Á þessu námskeiði er prógramm fyrir fólk sem glímir við ofþyngd. Í Heilsuborg er sérhæft starfsfólk sem vinnur einnig með starfsfólki á Reykjalundi. Þar á meðal er Erla Gerður Sveinsdóttir læknir. Fljótlega eftir að ég byrjaði í Heilsuborg tók ég þá ákvörðun að reyna að grenna mig með þrjóskunni einni til að sleppa við hjáveituaðgerð. Ég fann fyrir skilningi á mínum málum hjá Heilsuborg, fékk mjög gott aðhald á námskeiðinu varðandi mataræði og lífsstílsbreytingu. Það kom mér reyndar á óvart að ég mætti borða meira en yrði þó að leggja áherslu á hollt fæði. Ég þurfti að læra það."

Rúnar starfar hjá Nýherja og segist vera kyrrsetumaður. Oft er mikið að gera og matartímarnir ekki alltaf á réttum tíma. Rúnar segir að einfaldast hafi verið að kippa með sér skyndibita. "Ég hafði ekkert hreyft mig í nokkur ár, borðaði ekki morgunmat og matartímarnir voru óreglulegir. Það var því mikið stökk fyrir mig að breyta lífsstílnum svona mikið, hreyfa mig í líkamsræktarstöð þrisvar í viku og borða reglulega. Þjálfarar hjá Heilsuborg vita hins vegar hvað þeir eru að gera og sýndu mikinn stuðning. Öll þjálfunin er gerð með jákvæðni að leiðarljósi og aldrei neinar óraunverulegar kröfur gerðar," segir Rúnar og segist hafa fundið strax að staðurinn hentaði honum. "Þarna var fólk að æfa sem var í sömu sporum. Ég stunda enn líkamsrækt í Heilsuborg og hef aukið tímana frekar en hitt. Hreyfingin er orðin partur af lífsstílnum."

LineBreak